Hafnarfjarðarkaupstaður auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að koma með starfsemi í St. Jósefsspítala sem mun fá nýtt hlutverk sem Lífsgæðasetur. Þar verður fjölbreytt og lifandi starfsemi á sviði heilsuverndar og sköpunar í samræmi við heilsustefnu Hafnarfjarðar. Lífsgæðasetur verður opið samfélag sem býður meðal annars upp á forvarnir, heilsuvernd, snemmtæka íhlutun, fræðslu og sköpun. Í umsókn […]
Flokkur: Fréttir
Málþing Skóla- og Fjölskylduþjónustu um eflt samstarf
Hafnarfjarðarbær blæs til sameinaðs málþings í næstu viku undir yfirskriftinni „Þjónusta við börn og ungmenni í Hafnarfirði“ en það fer fram í Hraunvallaskóla. Það eru tvö umfangsmestu svið sveitarfélagsins, fræðslu- og frístundaþjónusta og fjölskylduþjónustan sem standa sameiginlega að málþinginu en síðustu misseri hafa sviðin markvisst unnið að enn meira samstarfi í ýmsu málaflokkum sem snúa […]
Við bjóðum Heim í Hafnarfjörð á fyrstu bæjarhátíð sumarsins!
Menningar og þátttökuhátíðin Bjartir dagar verður haldin í næstu viku eða dagana 18.-22. apríl í tengslum við Sumardaginn fyrsta eins og undanfarin ár. Bjartir dagar er þátttökuhátíð og byggir á því að stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar taki þátt í að skapa viðburði um allan bæ sem tengjast hátíðinni eða taki þátt í þeim dagskrárliðum sem […]
Viltu vera með á umhverfisvaktinni?
Öllum félögum, samtökum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að sækja um þátttöku í Umhverfisvaktinni gegn fjárstyrk. Verkefnið snýr að umhirðu og fegrun bæjarins og er markmiðið sem fyrr að efla umhverfisvitund íbúa, fegurri bær og aukin hreinsun. Hafnarfirði hefur verið skipt upp í svæði og komast aðeins tólf hópar að í hvert skipti. […]
Bæjarstjórnarfundur 11. apríl
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 11. apríl. Fundurinn hefst kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Sterk fjárhagstaða Hafnarfjarðarkaupstaðar
Fjármálastaða Hafnarfjarðarkaupstaðar hefur styrkst umtalsvert á undanförnum árum. Þessi styrking kemur vel fram í ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2017. Rekstrarafgangur fyrir A- og B-hluta nam 1.326 milljónum króna og veltufé frá rekstri var 3.646 milljónir króna, sem samsvarar 14,4% af heildartekjum. Þessi góða afkoma hefur leitt til þess að sveitarfélagið tók engin lán á árinu […]
Deiliskipulag Miðbæjar Hraun Vestur
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 31.okt.2017 að auglýsa á ný tillögu að deiliskipulagi Miðbæjar Hrauns Vestur með vísan til 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Endurauglýsingin byggir á athugasemdum Skipulagsstofnunar við greinagerð deiliskipulagsins dags. 18.sept 2015. Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að […]
Sund og menning um pásakana
Afgreiðslutími Hafnarborgar verður eftirfarandi yfir páskana: Skírdagur 28. mars: opið kl. 12-17 Föstudagurinn langi 30. mars: lokað Laugardag 31. mars: opið kl. 12-17 Páskadagur 1. apríl: lokað Annar í páskum 2. apríl: opið kl. 12-17 Afgreiðslutími Bókasafns Hafnarfjarðar verður eftirfarandi yfir páskana: miðvikudagur 28. mars: opið 10 – 19 fimmtudagur 29. mars (skírdagur): LOKAÐ föstudagur […]
Styrkir til hljóðvistar 2018
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Frekari upplýsingar fást í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, sími 585-5500. Styrkir eru veittir til endurbóta á hljóðeinangrun glugga á þeim hliðum húss þar sem hljóðstig reiknast 65 dB(A) eða hærra. Við úthlutun styrkja hafa þeir forgang sem búa við verstar aðstæður. […]
Hreinsunarátak daganna 7. til 18. apríl „Flottur Fjörður“
Vikuna eftir páska blæs Hafnarfjarðarbær til hreinsunarátaks í bænum þar sem íbúar eru hvattir til þátttöku í vorhreinsun sem skipulögð er við lóðir grunnskólanna og sundstaði í bænum. Þá verður einnig unnið með fyrirtækjum í hreinsun í þeirra umhverfi og gámum komið fyrir á þremur stöðum í Hafnarfirði og eru gámar einkum hugsaðir fyrir losun […]