Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 6. desember. Fundurinn hefst kl. 16 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundinum er streymt beint á heimasíðu. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu Útsending hefst stundvíslega kl 16:00.
Flokkur: Fréttir
OPIÐ HÚS Í GÖMLU SKATT- STOFUNNI
Hafnarfjarðarbær býður í opið hús í gömlu Gömlu Skattstofunni Suðurgötu 14 næst komandi föstudag 1. des. Milli kl. 15:00 – 17:00. Nýlega festi bærinn kaup á húsinu af Ríkissjóði og í dag hýsir Skattstofan nokkur verkefni á vegum bæjarins. Á næstunni verður efnt til hugmyndavinnu um nafn og framtíðar starfssemi í húsinu. Tvö verkefni eru […]
Hálka, salt og sandur
Mikil hálka er á götum, göngustígum og bílaplönum út um allan bæ þessa dagana. Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar er á vakt nánast allan sólarhringinn við söltun og söndun en það dugar ekki í öllum tilfellum til. Varðandi sandpoka þá er sandur, pokar og skóflur sem íbúar geta haft afnot af við Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar við Norðurhellu 2. Mjög […]
Hafnarfjarðarbær verðlaunaður af Evrópustofnuninni í opinberri þjónustu í Maastricth
EIPA, Evrópustofnunin í opinberri þjónustu, veitti í vikunni Hafnarfjarðarbæ EPSA viðurkenningu, eða svokölluð European public sector award. Viðurkenningin er veitt verkefnum í opinberri þjónustu sem bera vott um góða starfshætti og nýstárlegar úrlausnir á krefjandi viðfangsefnum. Þema EPSA verðlaunanna árið 2017 var nýsköpun í opinberri þjónustu en viðurkenningin var veitt í Maastricht í Hollandi núna […]
Jólaþorpið í Hafnarfirði
Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað í fimmtánda sinn föstudagskvöldið 1. desember kl. 18 með fjölbreyttri dagskrá á Thorsplani þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu. Í ár er það enginn annar en Laddi, Þórhallur Sigurðsson, sem mun segja frá jólunum sínum sem ungur drengur í Hafnarfirði, tendra ljósin á jólatrénu og telja í nokkur jólalög. Jólaþorpið […]
Skipulagsbreytingar við Suðurgötu 40-44
Þann 27. nóvember næstkomandi verður kynningarfundur þar sem kynnt verður tillaga að breytingum við Suðurgötu. Tillagan nær til lóðanna við Suðurgötu 40 – 44. Fundurinn verður haldinn í Hafnarborg og hefst kl.17. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi yfir í um 1,5 klst. Á fundinum munu arkitektar kynna tillögu að breytingum við lóðirnar og […]
Deiliskipulag Vesturbæjar og verndarsvæði í byggð
Þann 30. nóvember næstkomandi verður haldinn íbúafundur þar sem arkitektar kynna þá vinnu er snýr að nýju deiliskipulagi ásamt verndarsvæði í byggð. Skipulagsfulltrúi ásamt starfsmönnum verða við svörum. Fundurinn verður haldinn í Hafnarborg og hefst kl.17. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi yfir í um 1,5 klst. Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til […]
Bæjarstjórnarfundur 22. nóvember
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 22. nóvember. Fundurinn hefst kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundinum er streymt beint á heimasíðu. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu Útsending hefst stundvíslega kl 17:00.
Sjóður Friðriks og Guðlaugar
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Sjóði Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur. Hlutverk sjóðsins er að efla tónlistarlíf í Hafnarfirði og styrkja hafnfirska nemendur til framhaldsnáms í tónlist og fræðimenn í tónlist. Umsækjandi skal gefa greinargóða lýsingu á námi sínu eða fyrirhuguðu verkefni. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 27. nóvember 2017 sem er fæðingardagur Friðriks. […]
Jólaskreytingar
Það fer vel á því þegar fyrsti snjórinn fellur að hefja vinnu við jólaskreytingar í bænum. Öll grenitré sem felld eru í ár koma úr heimagörðum bæjarbúa, en það er beggja hagur: Íbúar þurfa að losna við stór grenitré og Hafnarfjarðarbæ vantar tré sem við getum notað sem jólatré. Þetta er íbúunum að kostnaðarlausu og bærinn […]