Category: Fréttir

Innritunaraldur í leikskóla lækkaður, útgjöld barnafjölskyldna minnka

Mánudaginn 1. júní, á 107 ára kaupstaðarafmæli bæjarins, verða lagðar fram í fræðsluráði tillögur sem miða m.a. að því að lækka innritunaraldur barna í leikskóla og hækka mótframlag til foreldra barna hjá dagforeldrum. Með þessum tillögum er reglunum breytt þannig að yngri börn komast inn í leikskóla og stefnt er að því að börn verði […]

Fráveitan – breytingar á lögnum í Ósnum

Á síðasta áratug tóku Hafnfirðingar myndarlega á fráveitumálum bæjarins. Ráðist var í átaksverkefni sem að fólst í því að byggðar voru fjórar sérhannaðar dælu- og hreinsistöðvar meðfram strandlengjunni frá Herjólfsgötu allt suður í Hraunavík. Inn á þessar stöðvar voru tengdar flestar eldri skolplagnir í eldri hlutum bæjarins en ástand þeirra var og er býsna misjafnt. […]

Hraunvallaskóli 10 ára

Nú í júní er stór stund í sögu skólans. Þá útskrifum við í fyrsta sinn nemendur sem hafa lokið tíu ára skólagöngu sinni við Hraunvallaskóla. Í tilefni þessara skemmtilegu tímamóta bjóðum við þér/ykkur að fagna með okkur þriðjudaginn 2. júni. Við bjóðum upp á fjölbreytta dagskrá á sal þar sem nemendur gleðja og skemmta okkur […]

Bæjarstjórnarfundur 27. maí

Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 13.maí l 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.

Sami staður, nýr tími

Fimmtudaginn 28. maí kl. 20 verður haldin málstofa um endurnýjun hafnarsvæða. Á meðal þátttakenda eru Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna, Anna María Bogadóttir arkitekt og Róbert Guðfinnsson athafnamaður frá Siglufirði. Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur leiðir umræðuna. Málstofan er haldin í tengslum við sýninguna Þinn staður okkar umhverfi við Flensborgarhöfn en það […]

Leynast garðyrkjuhæfileikar í þér?

Skólagarðar í Hafnarfirði opna mánudaginn 1. Júní. Garðarnir eru staðsettir á fimm stöðum víðsvegar um bæinn, í Setbergi, Holtinu, í Öldutúni, við Víðistaði og á Völlunum. Forgangur fyrir börn frá 7-12 ára börn er nú liðinn og geta því allir bæjarbúar frá aldrinum 7 ára og eldri sótt um garð í skólagörðunum, er hugmyndin sú […]

Þinn staður, okkar umhverfi við Flensborgarhöfn

Iðandi mannlíf einkennir hafnarsvæði víða um heim. Fjölbreytt atvinnulíf og ýmis þjónusta laða að sé fólk á öllum tímum dagsins allt árið. Flensborgarhöfn á sér langa sögu en nú stendur yfir undirbúningsvinna vegna nýs skipulags á svæðinu við smábátahöfnina sem er skilgreint sem blanda af hafnarsvæði og verslunar- og þjónustusvæði. Í Sverrissal verður komið fyrir […]

Allar stofnanir bæjarins lokaðar frá hádegi þann 19.júní

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 24. apríl  að starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar verði gefið frí frá hádegi  19. júní 2015 í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Skipulögð hátíðahöld eru áformuð viða um land þennan dag og með því að gefa frí er starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar gefinn kostur á að taka þátt í þeim.  Stofnanir […]

Týndu rusl í miðbænum og á Völlunum

Í morgunn fóru starfsmenn bæjarins í ráðhúsinu og á Norðurhellunni út og týndu rusl í miðbænum og á Völlunum. Hreinsunarátakið í morgunn er hluti af hreinsunardögum bæjarins sem nú standa yfir. Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar  eru á ferðinni um  bæinn og hirða garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Það voru fjölmargir svartir plastpokar sem […]

Sameiginlegt átak gegn heimilisofbeldi

Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar,  og Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi.  Í yfirlýsingunni felst að frá og með mánudeginum 18. maí taka velferðasvið sveitarfélaganna og lögreglan upp nýjar verklagsreglur sem tryggja eiga markvissari viðbrögð og úrræði gegn […]