Sjómannadagurinn er jafnan stór dagur í Hafnarfirði og er hann haldinn fyrsta sunnudag í júní ár hvert. Dagskrá: Kl. 8 Fánar dregnir að húni. Kl. 10 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu. Kl. 10.30 Blómsveigur lagður að minnisvarða við Víðistaðakirkju um horfna sjómenn Kl. 11 Sjómannamessa í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Kl. 13-16 Hátíðardagskrá Flensborgarhöfn: Kl. 13-16 […]
Flokkur: Fréttir
Nýr Daggæslufulltrúi
Hrund Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr daggæslufulltrúi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar og mun hefja störf 1. ágúst nk. Hrund er er menntuð sem uppeldisfræðingur (pædagog) frá Holstebro Pædagogseminarium í Danmörku og lauk einnig B.Ed. námi frá Kennaraháskóla Íslands. Í júní á síðasta ári útskrifaðist hún frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í mannauðsstjórnun. Hrund hefur víðtæka reynslu […]
Frumkvöðlasetrið Kveikjan flutt í nýtt húsnæði
Frumkvöðlasetrið Kveikjan sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands annast rekstur á í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og Garðabæ flutti fyrir skemmstu í nýtt húsnæði að Flatahrauni 14 í Hafnarfirði en í því húsnæði hafði slökkvilið Hafnarfjarðar áður aðsetur. Samstarfssamningur Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar, sveitarfélagsins Álftaness og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um frumkvöðlasetrið Kveikjuna var fyrst undirritaður 1. maí árið 2009. Þá var frumkvöðlasetrið […]
Viðurkenning fræðsluráðs til Hraunvallaskóla
Hraunvallaskóli hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar árið 2015 fyrir nýbreytni og þróunarstarf á unglingastigi skólans. Á síðustu árum hefur skólastarf á unglingastigi skólans verið endurskipulagt og þróað frekar út frá kennslufræði einstaklingsmiðunar með hliðsjón af kennsluaðstæðum (skólahúsnæðinu). Viðurkenning fræðsluráðs hefur það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi skólastarfs í samfélaginu og veita einstaka verkefnum viðurkenningu […]
Viðurkenning fræðsluráðs til Víðivalla
Leikskólinn Víðivellir hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs árið 2015 fyrir fagmennsku og skólaþróun í skólanum. Í skólanum hefur verið margvíslegt þróunarstarf verið í gangi og skólinn verið í forystu þar á mörgum sviðum. Viðurkenning fræðsluráðs hefur það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi skólastarfs í samfélaginu og veita einstaka verkefnum viðurkenningu sem miða að skólaþróun, samvinnu […]
Hraunvallaskóli 10 ára
Í gær var haldið upp á 10 ára afmæli Hraunvallaskóla með hátíð í skólanum í gær. Þar buðu starfsmenn og nemendur skólans gestur og gangandi upp á fjölbreyttar skemmtanir. Haldnar voru þrjár skemmtanir þar sem nemendur komu fram með söng, dansi og ræðuhöldum. Þá var öllum gestum boðið upp á afmælisköku og djús. Starfsfólki skólans, […]
eTwinning kennurum fjölgar í átaki
Þetta skólaár, skólaárið 2014-2015, hefur verið í gangi sérstakt verkefni í Hafnarfirði um að gefa fleiri grunnskólakennurum í bænum tækifæri til að taka virkan þátt í eTwinning verkefni Evrópusambandsins. Áður en verkefnið hófst voru 10,9% kennara í Hafnarfirði skráðir í eTwinning en nú í lok skólaársins voru þeir 18,9%. Fjöldi verkefna með hafnfirskum kennurum var […]
Lækjarskóli sigurvegari íþróttamótsins
Lækjarskóli er sigurvegari í íþróttamóti grunnskólanna í Hafnarfirði skólaárið 2014-2015. Keppnin var haldin í Kaplakrika í ár í maí. Það er breytilegt milli ára hverjar keppnisgreinar eru en í ár voru þær fótbolti, handbolti, bandý og frjálsar íþróttir (langstökk, 400 m hlaup og 200 m boðhlaup). Í hverju keppnisliði er blandað saman stelpum og strákum […]
Heimsókn til Frederiksberg
Mánudaginn 25. maí lögðu átta ungmenni í 8. bekk úr öllum skólum af stað á vinabæjarmót norrænu vinabæjarkeðjunnar í Frederiksberg í Danmörku. Þar tók unga fólkið þátt í fjölbreyttri vinnu með jafnöldrum sínum frá vinabæjunum þar sem hæfileikar þeirra voru fléttaðir saman við tónlistar og leiklistaratriði sem þau fluttu fyrir sendinefndir frá vinabæjunum sem komu […]
Óskar Guðjónsson ráðinn sem forstöðumaður Bókasafnsins
Óskar Guðjónsson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar og mun hefja störf í byrjun ágústmánaðar. Óskar er með meistaragráðu í bókasafnsfræðum frá State University of New Jersey og BA gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði og bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hann starfar nú sem safnastjóri og fer með yfirstjórn þriggja útibúa Borgarbókasafns Reykjavíkur. Anna Sigríður […]