Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar var samþykktur á fundi sem nú var að ljúka. Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2014 sýnir að fjárhagsstaða sveitarfélagsins er áfram erfið og að mikilvægt er að minnka útgjöld og greiða niður skuldir. Rekstarniðurstaða ársins, A- og B-hluta, var jákvæð um einungis 76 milljónir króna, sem er ekki í samræmi við aðlögunaráætlun sem gerð […]
Flokkur: Fréttir
Afmælistónleikar
Kór Öldutúnsskóla fagnar 50 ára afmæli sínu um þessar mundir með tónleikum í Víðistaðakirkju föstudaginn 1. maí kl. 17:00. Kórinn er elsti barnakór landsins sem starfað hefur samfellt. Efnisskráin samanstendur af sönglögum sem verið hefur á dagskrá kórsins í áranna rás. Frumflutt verður nýtt tónverk, Cancta Caecilia, eftir Báru Gísladóttur. Margir fyrrverandi kórfélagar koma fram […]
Aukin þjónusta við fatlað fólk
Í morgun undirrituðu, Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri og Guðrún Þórðardóttir formaður Áss styrktarfélags, þjónustusamning vegna búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Klukkuvelli í Hafnarfirði. Árið 2013 undirrituðu Hafnarfjarðarbær og Ás styrktarfélag viljayfirlýsingu þess efnis að Ás stæði að byggingu og rekstri þriggja búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði. Skóflustunga að fyrsta kjarnanum sem er að Klukkuvöllum […]
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar óskar eftir skýrum svörum um Iðnskólann
Á fundi bæjarstjórnar sem nú stendur yfir var samþykkt að fara fram á það við ráðherra að hann endurskoði ákvörðun sína um samruna Iðnskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans og hafi samráð og samvinnu við fulltrúa hagsmunaaðila, starfsfólks, nemenda, atvinnulífs og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði um stöðu og framtíð skólans. Bæjarstjóri hefur nú þegar óskað eftir fundi […]
Ertu með góða hugmynd ? Bæjarráð auglýsir eftir styrkumsóknum
Bæjarráð Hafnarfjarðar veitir félagasamtökum, fyrirtækjum eða einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröð sveitarfélagsins. Verkefni skulu tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti svo sem að þau fari fram í Hafnarfirði eða feli í sér kynningu á einhverju sem viðkemur sveitarfélaginu. […]
Sölutjöld/hús á 17. júní
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að leigja söluhús á 17. júní geta sótt um söluleyfi til skrifstofu tómstundamála, netfang: ith@hafnarfjordur.is eða í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötur 6 merktar 17. júní. Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en fimmtudaginn 20. maí kl. 15:00, en þá verður dregið um staðsetningu söluaðila og er aðilum boðið að […]
Mikill áhugi á Víðistaðatúni
Nýlega hóf starfshópur störf á vegum Hafnarfjarðarbæjar sem er ætlað að skoða möguleika á að nýta Víðistaðatún enn betur og móta framtíðarsýn fyrir svæðið. Þann 20.apríl var haldinn íbúafundur um Víðistaðatún, fjölmargir mættu á fundinn og voru líflegar og áhugaverðar umræður.
Menningarstyrkir veittir
Hafnarfjarðarbær veitti menningarstyrki við hátíðlega athöfn í Hafnarborg sl. föstudag og hlutu 23 einstaklingar, menningarhópar eða samtök styrk frá menningar- og ferðamálanefnd í ár. Veittir voru styrkir að upphæð kr. 4.240.000. Að auki fær Gaflaraleikhúsið samkvæmt samningi kr. 20.000.000 á ári. Styrki hlutu: Karlakórinn Þrestir kr. 150.000. Barabörukórinn kr. 150.000. Kór Öldutúnsskóla kr. 200.000 en […]
Bæjarstjórnarfundur 29.apríl
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 29.apríl 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Gefa starfsmönnum frí til að taka þátt í hátíðarhöldum á 19.júní
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag að starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar verði gefið frí frá hádegi 19. júní 2015 í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Skipulögð hátíðahöld eru áformuð viða um land þennan dag og með því að gefa frí er starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar gefinn kostur á að taka þátt í þeim. Stofnanir bæjarins […]