Category: Fréttir

Opið fyrir umsóknir í vinnuskóla fyrir 18 ára og eldri

Opnað hefur verið fyrir umsóknir hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar fyrir 18 ára og eldri. Vinnuskólinn leitar eftir duglegum og öflugum einstaklingum til starfa í sumar. Störf flokkstjóra 21 árs og eldri (fæddir 2001 eða fyrr) Flokksstjórar almennra hópa Flokkstjórar morgunhóps, Hellisgerði, listahóps og jafningjafræðslu Flokkstjórar hjá félögum Sumarstörf fyrir 18 ára og eldri (fædd 2004 eða […]

Skrá útvörp í sjálfboðavinnu

Félagarnir Jón Már Richardsson og Sigurður Harðarson tóku að sér það stóra verkefni í sjálboðastarfi að skrásetja stórt útvarpssafn frá Þór Gunnarssyni fyrrverandi Sparisjóðsstjóra, og önnur útvörp sem varðveitt eru í Beggubúð á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Jón Már og Sigurður komu nokkra daga í viku í janúar og febrúar og eru búnir að skrá yfir 200 […]

Áslandsskóli veit svarið

S.l. mánudag fór fram úrslitakeppni „Veistu svarið“ í bæjarbíó. Veistu svarið, er spurningakeppni grunnskólanna í Hafnarfirði og er keppnin með útsláttarfyrirkomulagi. Skólarnir sem tóku þátt voru: Nú framsýn menntun, Lækjaskóli, Víðistaðaskóli, Hraunvallaskóli, Setbergsskóli, Hvaleyraskóli, Áslandsskóli og Öldutúnsskóli. Í 4.liða úrslitum kepptu Hraunvallaskóli – Setbergsskóli og Hvaleyraskóli – Áslandsskóli og í úrslitum á mánudaginn kepptu Setbergsskóli […]

Landsmót Samfés og landsþing – 44 ungmenni frá Hafnarfirði

„Hvað finnst okkur“ – viðspyrnuaðgerðir ungs fólks Landsmót Samfés og Landsþing ungs fólks fór fram helgina 4.-6. mars á Hvolsvelli þar sem um 370 unglingar á aldrinum 13-16 ára frá félagsmiðstöðvum víðsvegar að af landinu komu saman. Á dagskrá var meðal annars kjör í Ungmennaráð Samfés sem er skipað fulltrúum úr öllum landshlutum, fjölbreyttar valdeflandi […]

Gaflaraleikhúsið hlaut hvatingarverðlaun MsH 2022

Hvatningaverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar voru veitt í sjötta sinn á s.l. fimmtudag við hátíðlega og skemmtilega athöfn í Hafnarborg. Gaflaraleikhúsið fékk hvatningaverðlaunin að þessu sinni meðal annars fyrir fyrir að standa fyrir mörgum frábærum sýningum í gegnum árin sem eru ómetanlegar fyrir menningarlíf bæjarins og mikill gleðigjafi. Sjá tilkynningu og fleiri myndir á vef MsH Við […]

Skoðanakönnun um útivistarsvæði í Hafnarfirði

Menningar- og ferðamálanefnd óskar eftir þátttöku íbúa og vina Hafnarfjarðar í laufléttri og stuttri könnun. Spurt er um atriði sem tengjast útivistarsvæðunum við Hvaleyrarvatn, Ástjörn/Ásfjall, Helgafell, Hellisgerði og Víðistaðatún og snúa meðal annars að nýtingu á útivistarsvæðunum, í hvaða tilgangi svæðin eru sótt og hugmyndum um hvernig hægt er að gera betur. Álit og skoðun […]

Ertu á aldrinum 16-18 ára með brennandi áhuga á mannréttindamálum?

Viltu koma með okkur til Uppsala í Svíþjóð og ræða mannréttindamál og þátttöku ungs fólks í ákvörðunartöku fyrir sitt nærsamfélag? Ungmennahúsið Hamarinn leitar að 8 ungmennum á aldrinum 16-18 ára, sem hafa brennandi áhuga á mannréttindamálum og hvernig ungt fólk getur komið betur að því að hafa áhrif á sitt nærsamfélag, til að koma með […]

Hafnarfjörður stækkar!

Ný hverfi verða til og eldri hverfi verða stærri Hafnarfjarðarbær hefur sett í loftið nýja upplýsingasíðu um þá uppbyggingu sem er að eiga sér stað í Hafnarfirði og mun eiga sér stað í náinni framtíð. Varpað er ljósi á uppbyggingu á tímabilinu 2017-2040 með áherslu á árin 2021-2031. Samantekt byggir á samþykktu skipulagi fyrir Hafnarfjörð […]

Söngfuglar í Söngkeppni Hafnarfjarðar

Söngkeppni félagsmiðstöðva Hafnarfjarðar var haldin í bæjarbíói þann 9.mars. Hópur ungra tónlistamanna tók þátt og var keppnin ansi hörð og var valið síður en svo einfalt fyrir dómarana, þau Klöru Ósk Elíasdóttur söngkonu, Andra Ómarsson verkefnastjóra menningar og markaðsmála hjá Hafnarfirði og Helenu Guðjónsdóttur tónmenntakennara í Skarðshlíðarskóla. Það var mikil stemmning í húsinu og gaman […]

Stöðug þróun í aðstoð við fatlað fólk

Hafnarfjörður er fram­sækinn bær þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk. Hugsað er út fyrir boxið og farnar nýjar leiðir til að bæta umhverfi og aðgengi. Marg­víslegar áskoranir komu upp hjá starfsfólki í Covid og nýjungar litu dagsins ljós. Hrönn Hilmarsdóttir, deildarstjóri þróunar og reksturs í málefnum fatlaðs fólks hjá Hafnarfjarðarbæ, hefur starfað hjá bænum […]