Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Um helgina fór fram vígsla og formleg opnun nýrra skíðamannvirkja í Bláfjöllum. Um er að ræða nýju stólalyfturnar Drottningu og Gosa og nýtt snjóframleiðslukerfi sem hefur verið sett upp á svæðinu. Þá hefur aðstaða fyrir skíðagöngufólk verið stórbætt. Vonir standa til þess að framangreindar framkvæmdir stórbæti upplifun notenda af svæðinu.
Um helgina fór fram vígsla og formleg opnun nýrra skíðamannvirkja í Bláfjöllum. Við það tækifæri héldu fulltrúar sveitarfélaganna og framkvæmdaaðila stuttar tölur og gestir tóku sér ferð með nýrri stólalyftu og skoðuðu svæðið en veður var með fallegasta móti. Um er að ræða nýju stólalyfturnar Drottningu og Gosa og nýtt snjóframleiðslukerfi sem hefur verið sett upp á svæðinu. Þá hefur aðstaða fyrir skíðagöngufólk verið stórbætt með nýrri salernisaðstöðu, snjógirðingum og lýsingu. Vonir standa til þess að framangreindar framkvæmdir stórbæti upplifun notenda af svæðinu svo og þess að unnt verði að fjölga opnunardögum með tilkomu snjóframleiðslu.
Tilkynning á vef SSH
Eru þessar framkvæmdir samkvæmt samkomulagi um viðamikla uppbyggingu á skíðasvæðunum, en vinna vegna þess hefur staðið yfir á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) allt frá árinu 2018, en þá var undirritað samkomulag eigenda skíðasvæðanna: Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um endurnýjun og uppbyggingu mannvirkja á svæðinu. Markmið þessara framkvæmda er að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir alla hópa skíðaiðkenda. Verkefnið í heild sinni hefur gengið vel og samkvæmt áætlunum. Framleiðsla og uppsetning á nýjum skíðalyftum var í höndum austurríska fyrirtækisins Doppelmayr í samstarfi við ÍAV og ítalska fyrirtækið TechnoAlpin sá um framleiðslu og uppsetningu á snjóframleiðslubúnaði, einnig í samtarfi við ÍAV. Borun vinnsluholu vegna uppistöðulóns fyrir snjóframleiðslu var í höndum Ræktunarsambands Flóa og Skeiða. Verkefnastjórn var í höndum VSÓ Ráðgjafar í samstarfi við skíðasvæðin, SSH og sveitarfélögin.
Upplýsingar um opnun á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins má finna á vef skíðasvæðanna og Facebooksíðu
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…