Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut

Framkvæmdir Tilkynningar

Vegna vegaframkvæmda (fræsing og malbikun) verður Reykjanesbraut lokuð að hluta, við Marel og Kaplakrika, frá 14.júní kl.19:00 til 15.júní kl.07:00.

Nánar:

„Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir sunnudagskvöldið 14.júní og aðfaranótt 15.júní.“

„Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut í vesturátt framhjá Marel. Framkvæmdir munu standa frá kl.19:00 til kl.04:00 aðfaranótt 15. júní. Kaflinn er 730m langur. Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur.“

Sjá yfirlitsmynd.

„Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut, beygjuvasa framhjá Kaplakrika. Framkvæmdirnar munu standa frá kl.21:00 til kl.07:00 aðfaranótt 15. júní. Beygjuvasinn verður lokaður og þrengt verður í eina akrein á akreinum meðfram vinnusvæðinu“.

Sjá yfirlitsmynd.

„Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.“

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt