Guðrún Brá og Róbert Ísak eru íþróttafólk Hafnarfjarðar 2021

Fréttir

Val á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar fór fram rafrænt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar í dag. Afrekslið Hafnarfjarðar 2021 er meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik hjá Knattspyrnufélaginu Haukum. Guðrún Brá Björgvinsdóttir kylfingur frá Golfklúbbnum Keili er íþróttakona Hafnarfjarðar og Róbert Ísak Jónsson sundmaður úr Íþróttafélaginu Firði er íþróttakarl Hafnarfjarðar.

Val á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar fór fram rafrænt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar í dag. Afrekslið Hafnarfjarðar 2021 er meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik hjá Knattspyrnufélaginu Haukum. Guðrún Brá Björgvinsdóttir kylfingur frá Golfklúbbnum Keili er íþróttakona Hafnarfjarðar og Róbert Ísak Jónsson sundmaður úr Íþróttafélaginu Firði er íþróttakarl Hafnarfjarðar. 

300 hafnfirskir einstaklingar hafa unnið titla á árinu

Árlega stendur Hafnarfjarðarbær fyrir afhendingu viðurkenninga til íþróttafólks sem keppir með hafnfirskum liðum, Íslandsmeistara, hópa bikarmeistara, Norðurlandameistara, heimsmeistara og sérstakra afreka, ásamt vali á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar. Rafræn hátíð fór fram á miðlum Hafnarfjarðarbæjar í dag. Á árinu 2021 hafa um 300 einstaklingar unnið Íslandsmeistaratitla og/eða bikarmeistaratitla með hafnfirsku liði og er þeim sérstaklega óskað til hamingju með árangurinn. Á hátíðinni var 8 milljónum úthlutað úr sjóði sem Rio Tinto á Íslandi, ÍBH og Hafnarfjarðarbær standa að og ætlað er að efla íþróttastarf fyrir yngri en 18 ára.

Einstök frammistaða í íslenskri íþróttasögu hjá afreksliði Hafnarfjarðar 2021

Meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik hjá Haukum náði að verða í öðru sæti á Íslandsmótinu, varð bikarmeistari og meistari meistaranna í haust. Einnig vann liðið fyrsta Evrópuleik sem íslenskt kvennalið hefur unnið núna í haust þegar portúgalska liðið Union Sportiva var lagt í forkeppni EuroCup. Haukar höfðu betur í samanlögðum úrslitum tveggja leikja þessa félaga og fóru í riðlakeppni Evrópukeppninnar. Með þessari frammistöðu eru Haukar að fara fyrir íslenskum kvennaliðum í körfuknattleik og er atburðurinn einstakur í íslenskri íþróttasögu.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2021

DSC00441

Guðrún Brá er ein af fremstu kylfingum landsins og hefur verið það í mörg ár. Hún er kvenkylfingur Golfsambands Íslands og Keilis 2021. Á árinu varð hún Íslandsmeistari kvenna í holukeppni og sigraði á móti B59 á mótaröð þeirra bestu. Guðrún Brá er atvinnukylfingur í golfi og leikur á Evrópumótaröð kvenna þar sem hún var með fullan þátttökurétt á árinu. Hún tók þátt í sextán mótum á árinu og vann sér inn þátttökurétt á lokamóti á Evrópumótaröðinni á Spáni í nóvember sl. Besti árangur hennar í ár var 12. sæti á Aramaco mótinu á Englandi í júlí og 8. sæti á ATS í Saudi Arabíu í nóvember. Guðrún Brá endaði í 75. sæti á styrkleikalista LET Evrópumótaraðarinnar og er í sæti 649 á heimslista atvinnukvenna í golfi. Guðrún Brá heldur fullum rétti á árinu 2022 á LET mótaröðinni sem hefst í febrúar. Hún er fjórða íslenska konan sem náð hefur keppnisrétt á mótaröðinni.

Róbert Ísak Jónsson er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2021

DSC00450

Róbert Ísak sundmaður Fjarðar er íþróttakarl Hafnarfjarðar og Íþróttasambands fatlaðra 2021. Hann er fjórfaldur Íslandsmeistari í 25m laug í flokki S14 og þrefaldur Íslandsmeistari í 50m laug. Einnig setti hann fjölda Íslandsmeta á árinu. Hann vann silfurverðlaun í 100m flugsundi og bronsverðlaun í 200m fjórsundi á EM á Madeira. Á Paralympics 2020 í Tókýó, sem fór fram 2021 náði hann 6. sæti í 100m flugsundi og 200m fjórsundi.

Hafnarfjarðarbær óskar íþróttafólki Hafnarfjarðar innilega til hamingju með afrek ársins 2021!

 

Ábendingagátt