Verkalýðsfélagið Hlíf fær lyklana að Strandgötu 1
Hafnarfjarðarbær hefur afhent Verkalýðsfélaginu Hlíf lyklana að Strandgötu 1. Nú hefjast þar framkvæmdir og stefna forsvarmenn Hlífar á að flytja félagið inn í húsið fyrir 120 ára afmælið.
„Það er mjög mikil tilhlökkun meðal starfsmanna og félagsmanna,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, framkvæmdastjóri Verkalúðsfélagsins Hlífar. „Okkur dreymir um að geta flutt hingað á 120 ára afmælinu,“ bætir hann við en félagið sé stofnað um mánaðamótin janúar febrúar 1907. „Við stefnum á að flytja húsið í byrjun næsta árs,“ segir Guðmundur.
Hlíf komið með lyklana
Guðmundur tók við lyklunum af gamla bókasafninu Strandgötu 1 nú eftir hádegi. Bæjarstjóri, sviðstjóri Umhverfis- og framkvæmdaráðs og þjónustu- og þróunarsviðs ásamt forstöðumanni bókasafnsins afhentu honum lyklana.
„Innilega til hamingju,“ sagði Þórður Þórarinsson bæjarstjóri. Andinn væri góður í húsinu og gott af afhenda þeim húsið á svo björtum degi.
Starf við endurhönnun hússins er þegar hafið. „Það hefur verið þröngt um okkur,“ segir Guðmundur. „Við höfum ekki getað sinnt neinni fræðslustarfsemi að gagni í nokkur ár. Við sjáum fyrir okkur að gera breytingar á því í nýju húsnæði.“
Breytingar á húsi og umhverfi
Eins og sagt var frá þegar kaupin voru tilkynnt verða miklar breytingar gerðar á reitnum við Strandgötu 1. Ráðhústorgið fær upplyftingu samhliða uppbyggingu hjá Hlíf. Félagið vinnur með Plús Arkítektum að breytingunum og uppbyggingu íbúðanna sex; tveimur á efstu hæð Strandgötu 1, tveimur á Austurgötu 4 og tveimur á Austurgötu 6. Á jarðhæð, Austurgötuhúsanna sem snúa að Strandgötu, verða verslanir- og þjónusta.
Félagið sjálft hyggst nýta tvær hæðir, auk kjallara, í gamla bókasafninu undir starfsemi sína. Það stefnir á að meginstarfsemi félagsins fari fram á jarðhæð og millihæð. Þar verði afgreiðsla, skrifstofur starfsfólks og viðtalsrými vegna erinda sem tengjast kjaramáladeild, orlofsdeild, fræðslumálum og sjúkrasjóði.
Stefnt er að því að á annarri hæðinni verði vinnurými starfsfólks sem ekki væri í daglegri móttöku félagsmanna og að einhverju leyti rými til námskeiðahalds. Millihæðina, þar sem nú er barnadeild bókasafnsins, stefnir félagið á að nýta undir námskeið, standandi sýningu listaverka og einstaka viðburði, til dæmis listasýningar.
Já, svo opnar bókasafnið okkar Hafnfirðinga í Firði síðar í mánuðinum!