Í loftfimleikum læra nemendur að treysta á eigin styrk og liðleika ásamt því að efla líkamsburð.
Nemendur læra allskonar kúnstir hangandi í silkjum eða lýru (loftfimleikahringur). Kennd verða grunnatriðin og tímarnir þróast með framförum nemenda.
Ef að nemandi er nýr við skólann þá þarf að hafa samband við skrifstofu varðandi hópaval. Kennarinn metur hvern og einn nemanda og raðar í hópa eftir getu. Ekki er nauðsynlegt að hafa grunn í dansi eða öðrum íþróttum til að byrja að æfa og bjóðum við alla velkomna.
Nemendur 8 ára og eldri geta bætt við sig auka valtímum til að auka tæknigetu, styrk og sviðsframkomu.
Aðrar íþróttir og tómstundir
Sundskóli – sundnámskeið
Ýmis sundnámskeið eða sundskóli í boði fyrir allt frá byrjendum til lengra komna.
Sumarnámskeið Klifið
Klifið býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn sem elska að skapa og tjá sig í gegnum myndlist, teikningu, leiklist, söng, dans og stafræna sköpun. Við leggjum áherslu á gleði, tjáningu og öruggt umhverfi þar sem hvert barn…
Reiðnámskeið
Fákar og fjör í samstarfi við hestamannfélögin Sörla og Sóta bjóða upp á ævintýraleg, fræðandi og skemmtileg reiðnámskeið á Álftanesi! Sumarnámskeiðin eru fjölbreytt og henta börnum á ólíkum aldri og getustigum. Námskeiðin eru eftirminnileg upplifun fyrir börn sem langar að…
Myndlist
Leiðbeinandinn mun taka þig í gegnum ýmis sjónræn dæmi og stíla og kynna aðrar aðferðir við teikningu. Kynnt verða hefðbundin og óhefðbundin verkfæri við að skapa. Námskeiðið fer að stærstum hluta fram inni í stúdíói Heiðdísar sem unnið hefur að…
Heilsuefling Hress 65 ára og eldri
Hress býður upp á metnaðarfulla þjálfun og mælingar sem bætir lýðheilsu 65 ára til muna.