Frábærar og fjölbreyttar styrktar- og þrekæfingar fyrir konur 60 ára og eldri. Unnið í að auka vöðvastyrk og getu og nýtum við alls konar æfingar til þessa. Við endum alltaf tímana á teygjum og förum út enn hressari.
Í fjölbreyttum tímum hjá okkur er unnið með styrk, vöðvaþol, úthald og hreyfanleika með fjölbreyttum æfingum og útfærslum. Við virðum hvort annað, sýnum metnað í þjálfun og aðlögum allar æfingar að hverri og einni konu eftir þörfum.
Aðstaða
Við bjóðum hvetjandi, faglega og vandaða þjálfun, fjölbreytta hópatíma og vel útbúna rækt. Handklæði til afnota og allt það helsta eins og tíðarvörur, eyrnapinna, hárþurkur og sléttujárn er til staðar í frábæra klefanum okkar. Við hvetjum þig til að hreyfa þig eftir eigin getu, hafa ánægju af og öðlast aukið heilbrigði.
Tímar
Styrkur 60+ er alla mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga klukkan 13.10 til 14.00. Einnig eru konur eldri en sextugt velkomnar í alla aðra tíma hjá okkur í Kvennastyrk þar sem allur aldur æfir hlið við hlið eftir eigin getu í öllum tímum.
Aðrar íþróttir og tómstundir
Sundskóli – sundnámskeið
Ýmis sundnámskeið eða sundskóli í boði fyrir allt frá byrjendum til lengra komna.
Sumarnámskeið Klifið
Klifið býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn sem elska að skapa og tjá sig í gegnum myndlist, teikningu, leiklist, söng, dans og stafræna sköpun. Við leggjum áherslu á gleði, tjáningu og öruggt umhverfi þar sem hvert barn…
Reiðnámskeið
Fákar og fjör í samstarfi við hestamannfélögin Sörla og Sóta bjóða upp á ævintýraleg, fræðandi og skemmtileg reiðnámskeið á Álftanesi! Sumarnámskeiðin eru fjölbreytt og henta börnum á ólíkum aldri og getustigum. Námskeiðin eru eftirminnileg upplifun fyrir börn sem langar að…
Myndlist
Leiðbeinandinn mun taka þig í gegnum ýmis sjónræn dæmi og stíla og kynna aðrar aðferðir við teikningu. Kynnt verða hefðbundin og óhefðbundin verkfæri við að skapa. Námskeiðið fer að stærstum hluta fram inni í stúdíói Heiðdísar sem unnið hefur að…
Heilsuefling Hress 65 ára og eldri
Hress býður upp á metnaðarfulla þjálfun og mælingar sem bætir lýðheilsu 65 ára til muna.