Opnunarhátíð bókasafnsins í dag – nýr kafli í aldargamalli sögu
Nýtt Bókasafn Hafnarfjarðar verður formlega opnað í Firði í dag, fimmtudaginn 13. ágúst. Opnunarhátíð verður frá kl. 16–18. Öll velkomin.
Nýr kafli í sögu bókasafnsins
Bókasafn Hafnarfjarðar heldur opnunarhátíð sína í dag á nýjum stað, á 2. hæð verslunarmiðstöðvarinnar í Firði.
Safnið er ekki lengur aðeins staður bóka og útlána heldur fjölbreytt rými fyrir lestur, nám, vinnu, sköpun og samveru. Þar er meðal annars upptökustúdíó fyrir tónlist og hlaðvörp, vinnurými og vinnustofur auk aðstöðu þar sem börn og fullorðnir geta skapað og miðlað eigin efni.
Um 125 þúsund heimsóknir eru á Bókasafn Hafnarfjarðar árlega og væntingar eru um að þeim fjölgi með nýju húsnæði og aukinni þjónustu.
Bókasafnið eflt enn frekar
„Nú skrifum við nýjan kafla í sögu þessa meira en aldargamla safns. Safnið hefur varðveitt sögur, miðlað þekkingu og veitt okkur innsýn inn í nýja heima. Og nú eflum við það enn. Nýtt hús. Ný byrjun á góðu ævintýri,“ segir Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Hann segir markmiðið að nýja bókasafnið verði fastur punktur í lífi Hafnfirðinga.
„Við stöndum hér í hjarta Hafnarfjarðar. Við stefnum að því að bókasafnið verði lifandi hús fyrir fólk á öllum aldri – samverustaður Hafnfirðinga. Þetta hús lifnar við þegar við sækjum það heim. Við biðjum ykkur, Hafnfirðinga, að gefa því það líf sem það á skilið.“
Stór umbreyting í miðbæ Hafnarfjarðar
Flutningur bókasafnsins er hluti af umfangsmiklum breytingum á Firði og miðbæ Hafnarfjarðar. Breytingarnar á Firði eru stærsta einstaka byggingarframkvæmdin í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi.
Hafnarfjarðarbær keypti húsnæðið undir bókasafnið fyrir 1,1 milljarð króna. Með flutningnum verður bókasafnið enn sýnilegri hluti af daglegu lífi í miðbænum og mikilvægur þáttur í þeirri uppbyggingu sem þar á sér stað.
Opnunarhátíð kl. 16–18 í dag
Opið hús verður í Bókasafni Hafnarfjarðar frá kl. 16–18 og verður fjölskylduvæn dagskrá í boði:
- Kl. 16:15 og 17:15: Gunni Helga með sögustund og upplestur úr nýrri bók
- Kl. 16–18: Listasmiðja fyrir börn
- Opið hús þar sem gestum gefst kostur á að kynnast nýju bókasafni Hafnfirðinga
Verið öll velkomin!