Ræðum Jólabæinn Hafnarfjörð

Fréttir Jólabærinn

Fyrirtækjaeigendum er boðið í spjall um Jólabæinn Hafnarfjörð og Jólaþorpið í Friðrikssalnum á 2. hæð í Firði, nýja bókasafninu okkar. Fundurinn er á morgun, föstudag og hefst kl. 9. Skráðu þig til leiks.

Jólaundirbúningurinn er hafinn

Við ætlum að bjóða fyrirtækjum í Hafnarfirði, í miðbænum og öðrum sem vilja taka þátt í Jólabænum, að koma og eiga samtal um Jólabæinn Hafnarfjörð,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins hjá Hafnarfjaðrarbæ.

Markaðsstofa Hafnarfjarðar heldur föstudaginn 18. september jólafund í bókasafni Hafnarfjarðar í Firði milli kl. 9-10:30. Boðið verður upp á léttan morgunverð og eftir stutta kynningu Sunnu um dagskrá, fyrirkomulag og undirbúning Jólaþorpsins gefst tækifæri til almenns spjalls og samráðs.

Opnunartíminn á Jólaþorpinu verður ræddur og hvernig fyrirtæki geti nýtt sér tækifærið þegar tugir þúsunda gesta heimsækja Hafnarfjörð. „Við viljum að sem flestir verði með okkur um jólin.“

Er þessi fundur þá einskonar gæðastýring? „Já, að ákveðnu leyti,“ segir Sunna. „Við erum að samræma hluti og tryggja að við göngum öll í takt og séum öll saman í þessu – dönsum saman. Þannig virkar Jólabærinn sem best.“

En getur Jólaþorpið teygt sig eitthvað út fyrir miðbæinn? „Ekki Jólaþorpið sem slíkt, en jólabærinn er allur Hafnarfjörður. Jólaþorpið er með miðpunktinn í bænum, sem teygir sig síðan upp í Hellisgerði og út að Nýsköpunarsetrinu við Lækinn.“

Hvert er helsta tækifærið við Jólabæinn fyrir hafnfirsk fyrirtæki? „Það koma hátt í hundrað þúsund gestir. Það er sýnileiki og tækifæri og mikilvægt að við stöndum öll saman í að gera upplifun allra þeirra sem koma sem allra besta.“

Já, Hafnarfjörður breytist í sannkallaðan jólabæ í aðdraganda jóla sem laðar að sér fjölda gesta. Hafnarfjarðarbær hefur umsjón með Jólaþorpinu og efnir því Markaðsstofan til fundar með bænum og Sunnu Magnúsdóttur, verkefnastjóra jólaþorpsins. Fyrirtæki eru hvött til að mæta, hvort sem þau eiga aðild að Markaðsstofunni eða ekki.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

 

Ábendingagátt