Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sérstakt horn, sem kallast Réttindahorn og er hilla með bókum sem efla réttindavitund, er nú komið upp á Bókasafni Hafnarfjarðar. Þar má finna bækur sem tengjast Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Bækurnar eru fyrir lesendur á öllum aldri. Réttindahornið er liður í að efla Hafnarfjarðarbæ sem barnvænt samfélag.
„Bókasafninu er annt um hag barna og telur því mikilvægt að samfélagið þekki og standi vörð um réttindi þeirra. Þessar völdu bækur veita innsýn í ýmis efni sem barnasáttmálinn nær til,“ segir Þórunn Þórarinsdóttir, verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags hjá Hafnarfjarðarbæ.
Dæmi um bækur í Réttindahorninu eru;
Hugrún Margrét, deildarstjóri á Bókasafni Hafnarfjarðar í barna- og ungmennastarfi, segir bókalistann í Réttindahorninu svo sannarlega ekki tæmandi þótt fjöldinn sé þónokkur. „Enda fjársjóðskista bókmenntanna bæði djúp og ríkuleg. Fjöldi barnabóka bendir á bága stöðu barna. Það er svo mikilvægt að þau fái að spegla sig í þessum vanda. Þau jafnvel sjá að staða þeirra sjálfra er ekki einsdæmi.“
Þórunn og Hugrún við Réttindahornið
Hugrún tekur dæmi og nefnir raunsæi norrænna barnabóka. „Eins og Ronja ræningjadóttir. Ronja og pabbi hennar hnakkrífast. Hún er eina stelpan með mömmu sinni í stórum hópi karlmanna. Hún yfirgefur svæðið því þau fullorðnu segja að hún megi ekki eiga vin.“ Hugrún nefnir líka ósýnilega barnið í Múmínálfunum. „ Ninna verður ósýnileg því það er svo illa komið fram við hana. Hún verður hrædd við að vera til. Svo þegar hún fær styrk fer hún að sjást aftur. “ Dæmin séu enn fleiri. Allar bækurnar í Réttindahorninu eru til útláns. Þórunn og Hugrún óska eftir tillögum frá lánþegum að titlum sem myndu sæma sér vel í hillunni. „Það skapar umræðu og víkkar sjóndeildarhring okkar allra.
Hafnarfjörður verður barnvænt samfélag
Barnvænt sveitarfélag er verkefni sem styður við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative, sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga um allan heim síðan árið 1996. Innleiðing Barnasáttmálans inn í sveitarfélagið, ásamt heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, er hluti af heildarstefnu Hafnarfjarðar sem gildir til ársins 2035. Í stefnunni er lögð áhersla á að viðmið Barnasáttmálans séu notuð í þjónustu við börn og ungmenni. Innleiðing Barnasáttmálans felur í sér samþykki sveitarfélagsins til að hafa sáttmálann að leiðarljósi í starfi sínu og að grunnþættirnir fimm gangi sem rauður þráður í gegnum stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga. Barnvæn sveitarfélög stuðla að virkri þátttöku barna í málefnum sem snerta þau og eiga sveitarfélögin markvisst samráð við börn og ungmenni til að bæta þjónustu sína. Barnvæn sveitarfélög byggja á fimm grunnþáttum sem allir tengjast réttindum barna.
Allt um barnvænt sveitarfélag og Hafnarfjarðarbæ
Nú er að njóta. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um páskana og njóta samveru og útiveru…
Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar, hefur verið sæmd heiðursorðu Póllands. Orðan er heiðursviðurkenning fyrir þjónustu við pólska samfélagið og Pólverja…
Allt kapp var lagt á að koma öllum ærslabelgjum heilsubæjarins Hafnarfjarðar í stand fyrir helgina enda skín sólin. Allir fimm…
Fimm brúarsmiðir starfa í Hafnarfjarðarbæ. Þeir hjálpa foreldrum af erlendum uppruna að fóta sig í íslensku grunn- og leikskólaumhverfi. Þeir…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2024 var lagður fram í bæjarráði í dag 10. apríl 2025. Rekstrarafgangur fyrir A og B…
Lúðrasveit Hafnarfjarðar heldur upp á 75 ára afmælið með stórtónleikum í Norðurljósasal Hörpu í kvöld kl. 20. „Stemningin er afar…
Fimm fengu gullmerki Badmintonfélags Hafnarfjarðar á föstudag. Öll voru þau í borðtennisdeild félagsins. Bæjarstjóri veitti merkið en afhendingin kom þessu…
Margt var við vígslu nítjánda leikskóla Hafnarfjarðarbæjar um hádegisbilið. „Útiaðstaðan hér er örugglega ein sú allra glæsilegasta á landinu,“ sagði…
Öllum fjórtán mánaða börnum, sem sóttu um fyrir tilskilinn frest hefur verið tryggt pláss í leikskólum Hafnarfjarðar frá hausti. Hafnarfjarðarbær…
Sesselja Elísabet Þorvaldsdóttir, Elsa, er 100 ára í dag, fædd 3. apríl 1925 í Grunnavík á Ströndum.