Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 21. desember að auglýsa í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 eftirfarandi skipulagsmál:

Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, vegna Hamranes M3

Í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 var samþykkta að breyta aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Breytingin felst í breytingu á greinargerð þar sem heimiluð er fjölgun íbúða úr 1500 í 1900 auk 80 þjónustueininga á hjúkrunarheimili.

Nýtt deiliskipulag, Áshamar 50, reitur 6A. Endurauglýst með vísan til breytingar á aðalskipulagi vegna Hamranes M3 fjölgun íbúða

Á reitnum sem úthlutað var sem þróunarreit er gert ráð fyrir byggingarreit upp á fimm hæðir fyrir fjölbýlishús með allt að 40 íbúðum. Á efri hæðum eru íbúðir en á jarðhæð hússins er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi, verslun, þjónustu eða annarri sérhæfðri starfsemi. Gert er ráð fyrir bílakjallara ásamt bílastæðum á lóð.

Nýtt deiliskipulag Hringhamar 10, reitur 20B. Endurauglýst með vísan til breytingar á aðalskipulagi vegna Hamranes M3 fjölgun íbúða

Á reitnum sem var úthlutað sem þróunarreit er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir þrjú fjögra til sex hæða fjölbýlishús með allt að 70 íbúðum. Gert er ráð fyrir bílakjallara ásamt bílastæðum á lóð.

Nýtt deiliskipulag Baughamar 1, reitur 30 C. Endurauglýst með vísan til breytingar á aðalskipulagi vegna Hamranes M3 fjölgun íbúða

Á reitnum sem var úthlutað sem þróunarreit er gert ráð fyrir tveimur fimm til sex hæða fjölbýlishúsum með allt að 58 íbúðum. Gert er ráð fyrir bílakjallara ásamt bílastæðum á lóð.

Breyting á deiliskipulagi Selhrauns suður, vegna Suðurhellu 9

Breytingin felst í því að byggingarreitnum er snúið og hann færður til. Auk þess er gert ráð fyrir nýjum út-/innkeyrslum á lóðinni

Breyting á deiliskipulagi miðhverfis Setbergs, vegna Stekkjarberg 11

Breytingin felst í að gert er ráð fyrir að lóðin stækki og á henni rísi 26 íbúðir í þremur tveggja hæða fjölbýlishúsum. Einnig er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir hjól og vagnageymslu.

——-

Tillögurnar eru til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 29.12. Einnig er hægt að skoða gögnin hér að neðan.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega í þjónustuver að Strandgötu 6 eigi síðar en 9.2.2023.

Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður

Ábendingagátt