Deildarstjóri í sértækt búsetuúrræði

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 08.11.2024

Umsóknarfrestur til: 22.11.2024

Tengiliður: Berglind Brynjarsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra í sértækt búsetuúrræði. Um er að ræða starf sem unnið er í dagvinnu. Við óskum eftir einstaklingi sem hefur framúrskarandi samskiptahæfileika, með drífandi áhuga á málefnum fatlaðs fólks og vill hafa gaman í vinnunni og er öðrum starfsmönnum fyrirmynd. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á réttindi fatlaðs fólks.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og fræðslu
  • Veitir starfsmönnum fræðslu og handleiðslu
  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfsstöðvar
  • Hefur yfirumsjón yfir faglegu starfi og tekur þátt í að þróa og yfirfara verkferla
  • Veitir fötluðu fólki stuðning og ráðgjöf við athafnir daglegs lífs
  • Tekur virkan þátt í þróunarvinnu
  • Umsjón með bókhaldi
  • Er staðgengill forstöðumanns í hans fjarveru
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni     

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða BA/BS gráða á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda
  • Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Reynsla og þekking af teymisvinnu æskileg
  • Mikilvægir eiginleikar eru sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Faglegur metnaður í starfi og áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Starfið krefst góðs líkamlegs atgervis
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Berglind Brynjarsdóttir forstöðukona í síma: 544-2360 netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 25.nóvember 2024.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf