Náms- og starfsráðgjafi – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 08.11.2024

Umsóknarfrestur til: 24.11.2024

Tengiliður: gudbjorgn@hraunvallaskoli.is

Hraunvallaskóli auglýsir eftir náms- og starfsráðgjafa í 100% starf.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum í 1.-7. bekk en í unglingadeild er faggreinakennsla.

Við leggjum áherslu á góðan skólabrag meðal allra og viljum að hver og einn fái að njóta sín eins og hann er.

Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að standa vörð um nám og velferð nemenda
  • Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
  • Að sitja í nemendaverndarráði og samskipta- og eineltisteymi skólans
  • Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
  • Að aðstoða nemendur með skólaforðun
  • Að veita nemendum, foreldrum/forsjáraðilum og starfsfólki ráðgjöf varðandi nám, námstækni, námsvenjur, líðan, kvíða og samskiptavanda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri, gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, gudbjorgi@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2024.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf