Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Arnarhraun

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.04.2025

Umsóknarfrestur til: 23.04.2025

Tengiliður: Arna Björg Arnardóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann á búsetukjarna fyrir fatlað fólk, sem staðsettur er miðsvæðis í bænum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í 30% aðra hvora helgi.  

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúa stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til félagslegrar virkni og þátttöku í samfélaginu
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta er skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Arna Björg Arnardóttir, forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: arnabjorg@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur 23.apríl 2025. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Önnur störf