Þroskaþjálfi – Skammtímadvöl Hnotubergi

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 06.03.2026

Umsóknarfrestur til: 22.03.2026

Tengiliður: Hrönn Harðardóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenni, staðsett í Setbergshverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí n.k. eða eftir samkomulagi

Starfshlutfall er 80% – 90% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
  • Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf, fræðslu og samskiptum við aðrar stofnanir
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotend, leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
  • Setja upp og fylgja eftir þjónustuáætlunum sem og starfsáætlun
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
  • Reynsla af skipulagi faglegs starfs á svið þroskaþjálfunar æskileg
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði, samviskusemi, hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað   
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hronnha@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026

Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf