Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 11.04.2025

Umsóknarfrestur til: 25.04.2025

Tengiliður: Arna Björný Arnardóttir

Lækjarskóli óskar eftir tónmenntakennara – sviðslistakennara í  100% starf

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Starfsánægju, samræmt námsmat og upplýsingatækni.

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.

Á næsta skólaári hefur Lækjarskóli innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984).  UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda og fá þá til að taka virkan þátt og bera ábyrgð á eigin námi. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að annast kennslu nemenda
  • Að standa vörð um velferð og nám barnanna
  • Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Kennlusréttindi í grunnskóla
  • Reynsla af tónmennta og/eða sviðslistakennslu í grunnskóla eða tónlistarskóla æskileg
  • Kostur ef viðkomandi spilar á hljóðfæri og getur stýrt fjöldasöng
  • Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
  • Áhugi á teymisvinnu
  • Hæfni í samskiptum
  • Frumleiki og sjálfstæði
  • Brennandi áhugi fyrir kennarastarfinu
  • Góð tölvukunnátta
  • Jákvæðni ogáhugi á að starfa í skapandi umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.

Hafðu samband við Örnu B. Arnardóttur skólastjóra, arna@laekjarskoli.is .

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2025.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf