Rekstur og tölfræði
Hér má finna ýmis gögn um fjármál Hafnarfjarðar, íbúakannanir og ýmsa tölfræði.
Íbúakannanir
Þjónustukönnun Gallup á meðal íbúa í 20 stærstu sveitarfélögum landsins er framkvæmd árlega í árslok. Könnunin tekur á viðhorfi 18 ára og eldri úr tilviljunarúrtaki til þjónustu sveitarfélaga.
Niðurstöður 2023
Helstu niðurstöður könnunar eru
- 87% íbúa eru ánægðir með Hafnarfjörð sem búsetustað
- 79% með aðstöðu til íþróttaiðkunar
- 76% með menningarmálin
- 75% með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið