Sveitarfélögin saman um uppbyggingu sérskólaúrræða

Fréttir

Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag, 13. maí 2026. Hafnarfjarðarbær stendur að viljayfirlýsingunni ásamt sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og tveimur ráðuneytum.

Hafnarfjarðarbær með í viljayfirlýsingu

Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í dag, 13. maí 2026. Að viljayfirlýsingunni standa Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu Samtaka sveitarféalga á höfuðborgarsvæðinu.

Viljayfirlýsingin byggir á greiningu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um fýsileika aukins samstarfs sveitarfélaganna og ríkisins um sérskólaúrræði. Niðurstöður greiningarinnar sýna að samstarfið sé bæði raunhæft og fýsilegt og að með samstilltu átaki sé hægt að byggja upp öflugri, sjálfbærari og fjölbreyttari úrræði fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir.

Horft til langtíma- og skammtímaúrræða

Markmið samstarfsins er að tryggja að börn sem þurfa sérskólaúrræði fái þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra og styður við farsæld þeirra, virkni og menntun.

Í samstarfinu verður horft bæði til uppbyggingar langtíma sérskólaúrræða fyrir börn með langtímasérskólaþarfir, fjölbreyttra skammtímaúrræða og einnig til eflingar sérdeilda innan almennra grunnskóla.

Samkvæmt greiningunni er áætlað að um 360 börn á grunnskólaaldri á höfuðborgarsvæðinu uppfylli skilyrði fyrir sérskólaúrræði á hverjum tíma, eða um 1,0-1,3%. Í dag eru rúmlega 200 börn í sérskólum og um 160 börn í öðrum sérúrræðum innan grunnskóla.

Sameiginleg ábyrgð sveitarfélaga og ríkis

Skipaður verður sameiginlegur stýrihópur sveitarfélaganna og mennta- og barnamálaráðuneytisins sem mun móta tillögur að framtíðarskipan úrræðanna, þar á meðal um uppbyggingu nýrra sérskóla, þróun skammtímaúrræða og eflingu sérdeilda innan almennra grunnskóla.

Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum fyrir lok árs 2026.

Í sameiginlegri yfirlýsingu stjórnar SSH við þetta tilefni segir: „Stjórn SSH er sammála um mikilvægi sameiginlegrar sýnar sveitarfélaganna og mikilvægi samstarfs ríkis og sveitarfélaga þegar að þessum málefnum kemur. Með samstarfi má sameina eftirspurn, fagþekkingu og fjármuni og þannig byggja upp stærri og stöðugri rekstrareiningar sem veita börnum betri og sérhæfðari þjónustu en núverandi fyrirkomulag gerir.“

Viljayfirlýsingin markar upphaf sameiginlegrar vegferðar sveitarfélaganna og ríkisins sem snýr að því að þróa framtíðarsýn og heildstæða uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu til lengri tíma.

Nánari upplýsingar og skýrslu SSH um fýsileikagreiningu á samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu sameiginlegs sérskóla er að finna hér að neðan. Skýrslan er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2025.

Ábendingagátt