Félagsleg úrræði
Allir íbúar Hafnarfjarðar eiga að geta búið við fjárhagslegt og félagslegt öryggi.
Stuðningsþjónusta
Sækja um stuðningFélagsleg stuðningsþjónusta er fyrir fólk sem býr í heimahúsum og getur ekki séð hjálparlaust um heimilishald eða persónulega umhirðu.
Þjónustan veitir aðstoð á heimilinu við hluti sem fólk getur ekki sinnt, til dæmis vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, veikinda, barnsburðar eða fötlunar. Þjónustan tekur mið af aðstæðum, óskum og þörfum hvers og eins og hjálpar fólki til sjálfsbjargar. Þjónustan er í boði á daginn, kvöldin og um helgar.
Aðstoð sem boðið er upp á:
- Heimilisþrif
- Heimsending á mat
- Aðstoð við innkaup
- Persónulegt hreinlæti
- Félagslegur stuðningur
- Hvatning í formi innlits
Sækja þarf um stuðningsþjónustu á Mínum síðum. Við mat á þjónustuþörf er stuðst við alþjóðlegt matstæki Rai Home Care.
| Stuðningsþjónusta | per klst. |
|---|---|
| Einstaklingar | |
| Einstaklingar með tekjur undir 419.660 kr. á mánuði | Frítt |
| Einstaklingar með 419.661–503.592 kr. í tekjur á mánuði | 661 kr. |
| Einstaklingar með hærri tekjur en 503.592 kr. á mánuði | 1.333 kr. |
| Hjón | |
| Hjón með tekjur undir 681.950 kr. á mánuði | Frítt |
| Hjón með tekjur frá 681.951–818.337 kr. á mánuði | 661 kr. |
| Hjón með hærri tekjur en 818.337 kr. á mánuði | 1.333 kr. |