Verum viðbúin – ráð til að undirbúa heimili fyrir áföll

Fréttir

Almannavarnir hafa gefið út bæklingin Verum viðbúin. Hann má finna hér fyrir neðan.

Almannavarnir segja „Verum  viðbúin“

Eigum nauðsynjar til þriggja daga, gerum einfalda heimilisáætlun og hugum að nágrönnum eru meðal ráðlegginga í bæklingnum Verum tilbúin frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Þar eru hagnýt ráð sem hjálpa fólki að búa sig undir röskun á daglegu lífi vegna náttúruhamfara, rafmagnsleysis eða annarra alvarlegra atburða.

Öryggi og velferð samfélagsins er sameiginlegt verkefni. Með góðum undirbúningi geta einstaklingar og fjölskyldur dregið úr óvissu og betur tekist á við erfiðar aðstæður. Jafnframt geirir það viðbragðsaðilum kleift að sinna þeim sem mest þurfa á aðstoð að halda.

Nauðsynjar til að minnst þriggja daga

Mælt er með í bæklingnum að heimili geti séð fyrir grunnþörfum heimilisfólks í að minnsta kosti þrjá daga. Meðal þess sem gott er að hafa tiltækt er:

  • Vatn til drykkjar og matargerðar
  • Geymsluþolinn mat og dósaopnara
  • Nauðsynleg lyf og skyndihjálpartösku
  • Vasaljós, rafhlöður og hleðslubanka
  • Útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum
  • Hlý teppi og hreinlætisvörur
  • Reiðufé og útprentaðan lista yfir mikilvæg símanúmer

Birgðir og búnaður þurfa að miðast við fjölda á heimilinu og þarfir hvers og eins. Huga þarf að barnamat, fóðri og búnaði fyrir gæludýr séu þau hluti af fjölskyldunni.

Gerum einfalda heimilisáætlun

Skoðum og veltum fyrir okkur – gerum áætlanir um:

  • Hvernig náum við sambandi við okkar nánustu ef sími og net liggja niðri?
  • Hvar hittumst við ef við komumst ekki heim?
  • Hvað þurfum við að taka með ef rýma þarf húsnæðið?

Þetta eru meðal atriða sem gagnlegt er að ræða við heimilisfólk og setja í einfalda heimilisáætlun. Gott er að geyma útprentað eintak þar sem allir vita af því, fara reglulega yfir áætlunina og æfa helstu atriði.

Undirbúningurinn þarf ekki að gerast allur í einu. Hægt er að taka eitt skref í senn og byrja á því að kanna hvað er þegar til á heimilinu.

Fylgjum réttum leiðbeiningum

Mikilvægt er að fylgjast með opinberum upplýsingum og fylgja fyrirmælum stjórnvalda þegar neyðarástand skapast. Sérstaklega er minnt á í bæklingnum að sannreyna upplýsingar áður en þeim er deilt.

  • Rás 2 er neyðarrás RÚV og þar berast skilaboð stjórnvalda til almennings á neyðarstundu.

Jafnframt er lögð áhersla á að fólk hugi að fjölskyldu, vinum og nágrönnum sem gætu þurft aðstoð. Ræða þarf fyrir fram hvernig tryggja megi stuðning við þau sem reiða sig á aðstoð í daglegu lífi.

Íbúar eru hvattir til að kynna sér bæklinginn og ræða viðbúnað á sínu heimili. Geymum hann á góðum stað þar sem auðvelt er að grípa til hans þegar á þarf að halda.

Ábendingagátt