Þessi sýning er afrakstur nokkurra ára vinnu og efniviðurinn kemur úr öllum áttum.

Útivist og umhverfið hafa alla tíð verið snar þáttur í mínu lífi. Ég er einlægur aðdáandi íslenskrar náttúru og ferðast mikið um landið, hvort sem það er að sumri eða vetri. Á sumrin sækist ég eftir að skoða staði sem ég hef ekki komið á áður, en fer líka oft á sömu slóðir til að sjá hvernig náttúran breytist á mismunandi árstímum. Á þessum ferðum tek ég mikið af ljósmyndum og beini gjarnan sjónum mínum að hinu smáa í náttúrunni, frekar en heildarmyndinni, sem fær samt að fylgja með af eðlilegum ástæðum.

Blóm, grös og allskonar jurtir hafa heillað mig í langan tíma. Náttúra landsins er sífelld uppspretta en líka garðablóm og jurtir sem vaxa í nánasta umhverfi okkar. Mismunandi áferð blómaknúpanna vekja áhuga og hugrenningar um mikilfengleika náttúrunnar. Litir, munstur og samsetning blómanna eru til marks um hvað náttúran er óendanlega merkileg og töfrandi. Það er áskorun að festa náttúruna á striga og hægt að gera það á margvíslegan hátt, hvort sem notast er við raunsæislegar eða óhlutbundnar aðferðir.

Ég sinni málverkinu aðallega á veturna og sæki efniviðinn gjarnan í þær ljósmyndir sem ég hef tekið á ferðum mínum um landið.

Rósa Sigurbergsdóttir (1957) er fædd í Hafnarfirði og stundaði nám í Öldutúnsskóla áður en hún fór í Verzlunarskóla Íslands og Kennaraskóla Íslands, þaðan sem hún útskrifaðist 1981. Rósa starfaði sem kennari í Öldutúnsskóla frá 1982 til 2024.

Rósa hefur alla tíð haft mikinn áhuga á myndlist og fer á myndlistarsýningar hér heima og erlendis hvenær sem færi gefst. Árin 2007-2008 stundaði hún nám við Endurmenntun Kennaraháskóla Íslands með áherslu á listgreinar. Hún komst í náin kynni við olíumálun sem heillaði hana og naut handleiðslu Jóns Reykdal á þessum tíma. Rósa hefur stundað málun síðan þá og sótt námsskeið í Myndlistarskólanum í Reykjavík og Myndlistarskóla Kópavogs um langt árabil. Hún hefur notið handleiðslu Þorra Hringssonar, Sigtryggs Baldurssonar, Einars Garibaldi Eiríkssonar, Bjarna Sigurbjörnssonar, Svanborgar Matthíasdóttur, Margrétar Zóphóníasdóttur og Halldórs Kristjánssonar.

Rósa hélt einkasýningu í Íshúsi Hafnarfjarðar vorið 2016 og sýningu í Litla Gallerý í febrúar 2020. Þetta er þriðja einkasýning hennar.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 14. maí frá 17:00-20:00 og þér er boðið !

Aðrir opnunartímar:

Fös.           15. maí           14:00 – 18:00
Lau.           16. maí           13:00 – 17:00
Sun.           17. maí           14:00 – 17:00
Mið.           20. maí           14:00 – 16:00
Fim.           21. maí           14:00 – 16:00
Fös.           22. maí           14:00 – 18:00
Lau.           23. maí           13:00 – 17:00
Sun.           24. maí           14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Hafnarfjarðarbæ vegna viðburðarins

—————————–

This exhibition is the result of several years of work and the inspiration comes from all directions.

Outdoor activities and the environment have always been a big part of my life. I am a sincere admirer of Icelandic nature and travel a lot around the country, whether it is in summer or winter. In the summertime I want to see places I have not been to before, but I also often go to the same places to see how nature changes in different seasons. On these trips I take a lot of photographs and often focus my attention on the small things in nature, rather than the big picture, which is often included for logical reasons.

Flowers, grasses and all kinds of herbs have fascinated me for a long time. The nature of the country is a constant source, but also garden flowers and herbs that grow in our closest environment. The different textures of the flower buds arouse interest and thoughts about the magnificence of nature. The colors, patterns and compositions of the flowers are a sign of how infinitely remarkable and magical nature is. It is a challenge to capture nature on canvas and it can be done in a variety of ways, whether using realistic or abstract methods.

I mainly paint in the wintertime and often draw inspiration from photographs I have taken on my travels around the country.

Rósa Sigurbergsdóttir (1957) was born in Hafnarfjörður and studied at Öldutúnsskóli before attending the Icelandic School of Commerce and the Icelandic School of Teachers, from which she graduated in 1981. Rósa worked as a teacher at Öldutúnsskóli from 1982 to 2024.

Rósa has always had a great interest in art and attends art exhibitions here at home and abroad whenever she gets the chance. In 2007-2008, she studied at the Continuing Education of the Iceland University of Teacher Education with an emphasis on the arts. She became closely acquainted with oil painting, which fascinated her, and enjoyed the guidance of Jón Reykdal during this time. Rósa has studied painting ever since and attended courses at the Reykjavík School of Art and the Kópavogur School of Art for many years. She has enjoyed the guidance of Þorri Hringsson, Sigtryggur Baldursson, Einar Garibaldi Eiríksson, Bjarni Sigurbjörnsson, Svanborg Matthíasdóttir, Margrét Zóphóníasdóttir and Halldór Kristjánsson.

Rósa held a solo exhibition at Íshús Hafnarfjörður in the spring of 2016 and an exhibition at Litla Gallery in February 2020. This is her third solo exhibition.

There will be a special exhibition opening on Thursday, May 14th  from 17:00-20:00 and you are welcome!

Other opening hours:

Fri.             15. May           14:00 – 18:00
Sat.            16. May          13:00 – 17:00
Sun.           17. May           14:00 – 17:00
Wed.          20. May          14:00 – 16:00
Thur.          21. May           14:00 – 16:00
Fri.             22. May            14:00 – 18:00
Sat.            23. May           13:00 – 17:00
Sun.           24. May           14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by town Hafnarfjordur for this event.

Ábendingagátt