Ein stök hús er ljósmyndasýning sprottin upp frá þeirri hugmynd að húsin standa ein og stök, yfirgefin en samt umkringd magnaðri náttúru.

Húsin standa auð, en eru þau raunverulega auð? Eru þau ekki full af minningum um fólk sem þar bjó? Minningar um gamla tíma sem koma ekki aftur. Minningar sem eru að hverfa. Þekking sem við gleymum.

Eyðibýli hafa í gegnum tíðina verið mörgum innblástur að verkum hvort sem það eru rithöfundar, listmálar, ljósmyndarar eða aðrir listamenn. Það fylgir eyðibýlum ákveðin dulúð, að sjá þau standa ein og yfirgefin í stórbrotnu landslagi þar sem fjöllin eða hafið spilar oft stóran þátt í umhverfi þeirra.

Eyðibýli er heimild gamalla tíma, hvernig fólkið bjó, hvernig það endurspeglar sig í náttúruöflunum og einangrun þess tíma. Eyðibýli skilja eftir sig minningar um horfna tíma fulla af lífi. Eyðibýli geta haft mikla þýðingu af ýmsum ástæðum. Þau geta verið merkar menningarminjar og mikilvægar heimildir um byggðasögu í sveitum.
Það er oft svo mikil dulúð sem fólk tengir þessum húsum. Að framliðið fólk sækist eftir að búa þar og gamlir ábúendur séu þar á sveimi og fylgist með gestum sem þar bera að garði. Margar draugasögur og hjátrú spretta upp frá húsunum og oft hægt að ímynda sér að húsið hafi sál, sé jafnvel í huga þess sem á það horfir hrein sjónhverfing. Vin í eyðimörk fólksins sem þar bjó og hyllingar þess sem það byggði.

Mörgum spurningum er enn ósvarað. Hvað olli því að fólk byggði hús fjarri allri siðmenningu? Enn stærri spurning … hvers vegna yfirgaf það hús sitt svo snögglega?

Klippimyndirnar eru að mínu mati skemmtileg tilbreyting frá því að hafa allt í föstum skorðum yfir í það að hafa áhrif á hvernig við skynjum myndirnar, nálægð, dýpt og skapa þannig allt önnur áhrif en upprunaleg mynd hafði. Þegar við skoðum myndir af eyðibýlum eru þær mjög oft hafðar í svart hvítu því það gefur ákveðna dýpt og dulúð inn í myndina. Ég ákvað hins vegar að leyfa blæbrigðum litanna að njóta sín í íslensku landslagi þar sem tíminn hefur málað húsin sínum ryðfúnu litum.

Dagný Dögg Steinþórsdóttir útskrifaðist úr Ljósmyndun úr Tækniskólanum vorið 2021. Ljósmyndun hefur alltaf átt hug hennar. Hún skynjar oft umhverfið út frá ljósmyndaramma og eyðibýli hafa heillað hana sérstaklega.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 8.júní frá 18:00-20:00 og allir hjartanlega velkomnir.

 

Opnunartímar eru eftirfarandi:

  • fimmtudagur  12:00 – 18:00
  • föstudagur      13:00 – 18:00
  • laugardag       12:00 – 17:00
  • sunnudag       14:00 – 17:00

 

Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.

Ábendingagátt