Iðuhvolf // Victor G. Cilia
Í iðuhvolfi sólarinnar berst varmi til yfirborðsins með hreyfingu heits gass. Efnið rís, breiðist út og sekkur aftur niður. Þessi…
Sunnudaginn 13. september kl. 14 mun Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, leiða gesti um sýninguna Bjarmaband, sem stendur nú yfir í Hafnarborg, og ræða verk Frosta Fjalars í samhengi við sérstakan feril listamannsins og stöðu hans í íslenskri myndlist.
Á sýningunni getur að líta úrval verka eftir Frosta, sem um áratugaskeið vann að list sinni í einrúmi. Frosti, sem áður hét Jakob Jónsson, átti að baki langan feril sem spannaði meira en hálfa öld. Eftir virkt sýningartímabil á áttunda og níunda áratug síðustu aldar dró hann sig hins vegar í hlé og tók hvorki þátt í sýningum né var virkur á opinberum vettvangi eða innan myndlistarsamfélagsins. Á löngum ferli mótaðist myndmál hans af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri tilfinningu fyrir litum.
Sýningarstjóri er Ásdís Spanó.
Frosti Fjalar (1936-2026) nam myndlist í Kaupmannahöfn, fyrst við Ny Carlsberg Glyptotek og síðar við Det Kongelige Danske Kunstakademi, auk þess sem hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi. Eftir síðustu sýningu sína árið 1991 hvarf hann af sjónarsviðinu en hélt áfram að skapa af einstakri einurð. Eftir hann liggja hátt í sex þúsund vatnslitaverk og um átta hundruð málverk.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.