Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þriðjudaginn 6. maí kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á síðustu hádegistónleika vormisseris í Hafnarborg en þá verður Edda Austmann, mezzósópran, gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Á efnisskrá tónleikanna, sem bera yfirskriftina „Alls konar blóm – og ástin“, verða aríur úr óperum eftir Gluck, Purcell, Saint-Saëns og Delibes.
Edda Austmann, mezzósópran, hóf söngnám sitt í Söngskólanum í Reykjavík og lauk bakkalárgráðu í tónlist frá Konunglegu tónlistarakademíunni í London. Hún vann til söngverðlauna og hlaut fullan skólastyrk til náms í óperudeild Konunglega tónlistarháskóla Skotlands, þar sem hún fór með nokkur burðarhlutverk í óperuuppfærslum skólans. Eftir útskrift baust henni svo staða í Zürich óperustúdíói og þá þreytti hún frumraun sína á sviði Zürich óperunnar.
Edda hefur starfað sem einsöngvari með Konunglegu skosku sinfóníuhljómsveitinni og með Zürich kammerhljómsveitinni í Tonhalle. Eins hefur hún verið einsöngvari í helgiverkum með kór og hljómsveit. Edda hefur komið fram hérlendis og í Evrópu, meðal annars á vegum Zürich óperunnar, Garsington óperunnar og Íslensku óperunnar, auk sjálfstæðra óperuframleiðenda. Edda vann síðast undir handleiðslu Jóns Þorsteinssonar, tenórs og söngprófessors. Edda er skólastjóri Tónskólans í Reykjavík en hefur áður starfað við stjórnun í tónlistarhúsinu Hörpu.
Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.