Frosti Fjalar: Bjarmaband – sýningarstjóraspjall
Sunnudaginn 25. október kl. 14 mun Ásdís Spanó, sýningarstjóri, leiða gesti um sýninguna Bjarmaband og ræða líf og list Frosta…
Þriðjudaginn 6. október kl. 12 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en þá verður Rósalind Gísladóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Á efnisskránni verða aríur úr óperum eftir Mozart, Bizet, Rossini og Mascagni en tónleikarnir bera að þessu sinni yfirskriftina „Úr öllum stéttum“.
Rósalind Gísladóttir, sópran/mezzo-sópran, lærði í Söngskólanum í Reykjavík, þar sem Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Kolbrún Sæmundsdóttir voru hennar aðalkennarar. Að loknu námi þar hélt hún til Spánar þar sem hún stundaði söngnám hjá Cristinu Beatriz Carlin í Madríd og Mariu Dolors Aldea í Barcelona. Síðast sótti hún svo tíma hjá Kristjáni Jóhannssyni en auk þess hefur hún farið í einkatíma og sótt masterclass hjá Miguel Zanetti, Janet Williams, David Jones, Martin Isepp, André Orlowitz, Robin Stapleton og Donald Kaash.
Árið 2012 lenti Rósalind í 1. sæti í Barry Alexander Vocal International Competition og var í kjölfarið boðið að syngja í Carnegie Hall í New York. Hún tók þátt í gjörningi Ragnars Kjartanssonar á Performa 11 í New York árið 2011 en viðburðurinn var valinn einn af 10 merkilegustu listgjörningum ársins þar ytra og upptaka af atburðinum var síðar sýnd á Listahátíð árið 2012. Rósalind hefur jafnframt sungið á fjölmörgum tónleikum og sýningum, meðal annars á vegum Óp-hópsins, hádegistónleikum hjá Íslensku óperunni og Hafnarborg, Tíbrá í Salnum, sem og að koma fram erlendis. Þá söng hún með kór Íslensku óperunnar í nánast öllum sýningum frá 2011-2023 og ferðaðist með Íslensku óperunni til Ungverjalands og Danmerkur með sýninguna Brothers eftir Daníel Bjarnason.
Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.
Smelltu hér til að kynna þér tónleikadagskrá haustmisseris 2026 og sjá hvað er framundan í Hafnarborg. Vinsamlegast athugið að Rósalind Gísladóttir hleypur í skarðið fyrir Martynu Gesella, sem áætlað var að kæmi fram á tónleikunum líkt og áður hafði verið auglýst.