Hamingjudagar í Hafnarfirði
Sjóbað, jóga nidra, söngpartý og samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í Hafnarfirði. Gæðastundir með góðu fólki í heilsubænum Hafnarfirði.
Hugmyndin að Hamingjudögum kviknaði árið 2023 til að bregðast við ákveðnum vísbendingum um að hamingjustuðull landsmanna fari dvínandi og eru því nú haldnir í fjórða sinn.
Nú breytum við því og setjum mark okkar á hamingjuna!
Heilsusamlegur lífsstíll og jákvætt viðhorf stuðlar að betri andlegri og líkamlegri líðan og eykur hamingju okkar. Sækjum í hamingjuna saman.
Heilsubærinn Hafnarfjörður stendur fyrir ýmsum viðburðum sem tengjast heilsu og hamingju allan septembermánuð! Komdu að njóta!
Hamingjuviðburðir á Hamingjudögum í Hafnarfirði
- HamingjuHlaup – 10 kílómetrarnir hans Krissa – Þri. 1. sept kl. 17:30
- HamingjuHelgafell með Rúnari Pálssyni – Fim. 3.sept kl. 17:30
- HaminguSöngpartý með Guðrúnu Árný í Hellisgerði – Fös. 4. sept kl. 20
- HamingjuJógaNidra í Hellisgerði – Mið. 9. sept kl. 17
- HamingjuJógaNidra í Hellisgerði – Lau. 12. sept kl. 12
- HamingjuSjóbað með Glaðari Þú – Þri. 15. september kl. 17:30
- HamingjuZumba í Suðurbæjarlaug – Fim. 17. september kl. 17:30
- HamingjuPrjónakaffi á Ægi 220 – Sun. 20. sept kl. 13 – 16
- HaminguGanga með Jónatani Garðars – Mið. 23. sept kl. 19
- HamingjuTónleikar með Valdimar – Fös. 25.sept kl.20
- HamingjuJógaNidra í Hellisgerði – Lau. 26. sept kl. 12