Frosti Fjalar: Bjarmaband – sýningarstjóraspjall
Sunnudaginn 25. október kl. 14 mun Ásdís Spanó, sýningarstjóri, leiða gesti um sýninguna Bjarmaband og ræða líf og list Frosta…
Laugardaginn 14. júní kl. 14 mun Aldís Arnardóttir, sýningarstjóri og forstöðumaður Hafnarborgar, leiða gesti um sýninguna Í sátt við efni og anda, sem stendur yfir í Hafnarborg í sumar, þar sem litið er yfir langan og fjölbreyttan feril listamannsins Eiríks Smith. Þá er sýningin sett upp í tilefni af því að listamaðurinn hefði fagnað 100 ára afmæli í ár, hefði honum enst aldur.
Ferill Eiríks Smith (1925-2016) var í senn langur og margbreytilegur. Hann tókst á við málverkið sem tjáningarform og eftir hann liggja verk sem bera vitni um einstök tök á jafn ólíkum viðfangsefnum og strangflatarlist, tjáningarríku abstraktmálverki og raunsæisverkum. Þar er maðurinn oft í forgrunni en landið og mannanna verk mynda magnþrungna umgjörð. Í gegnum tíðina tók nálgun hans miklum breytingum í takt við tíðarandann en einnig vegna þess að listamaðurinn leitaði meðvitað á nýjar slóðir.
Þannig má líkja listferli Eiríks við pendúl sem sveiflast milli tveggja póla. Hann leitar bæði fanga í samtali við hið huglæga og hið hlutlæga og á síðari hluta ferilsins koma tímabil þar sem hann fer bil beggja. Í þeim má skynja þá sannfæringu listamannsins að lífinu sé best lifað í sátt við hvort tveggja, efni og anda. Sýnd verða valin verk frá öllum ferli hans, auk eldri teikninga frá námsárum í Kaupmannahöfn og París.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.