Katabasis er fornt hugtak á grísku sem þýðir “ferð niður á við”, eða “ferð niður til heims hinna dauðu”. Hugtakið hefur komið oft fyrir í fornsögum þar sem söguhetjan verður fyrir mesta mótlætinu og verður að ganga gegnum helvíti til að hefja för sína aftur upp úr undirdjúpunum. Katabasis á einnig við ferli þar sem manneskja gengur undir djúpstæðum breytingum á erfiðum tímum.

Þessi sýning fjallar um hvað katabasis stendur fyrir bæði í tengslum við þær breytingar sem manneskjur verða fyrir gegnum ævina en einnig hvaða hugrænar tengingar standa eftir slíkar breytingar og hvaða form þau taka. Með því að vinna með málverkið sem síu fyrir form sem krafsa upp úr undirmeðvitundinni er hægt að fanga það sem situr eftir á botni heljar.

Heimir Snær er starfandi myndlistarmaður með BA Hons í myndlist frá University of Cumbria og Mastersgráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Heimir hóf nám sitt í málaradeild MÍR árið 2021 og hefur áður unnið í leikmyndadeild fyrir sjónvarp og kvikmyndir.

Heimir hefur áður unnið að sýningum sem tengjast hugmyndum um skuggann, sólarganginn, drauma og forspár.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 5. nóvember frá 18:00-21:00 og þér er boðið !

Aðrir opnunartímar:

Fös.           6. nóvember         14:00 – 17:00
Lau.           7. nóvember          14:00 – 17:00
Sun.           8. nóvember         14:00 – 17:00

Fös.           13. nóvember         14:00 – 17:00
Lau.           14. nóvember         14:00 -17:00
Sun.           15. nóvember         14:00-17:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Hafnarfjarðarbæ vegna viðburðarins

—————————–

Katabasis is an ancient Greek term symbolising a journey downwards or more fittingly: “a journey to the underworld”. This term is a widely used trope in stories joining with elements like the hero’s journey. This journey to the underworld is often used as a metaphor for the most harrowing part of the hero’s journey in which they must undergo a challenging trip through hell to come out changed on the other side. Katabasis is also used as a term in psychology for a time of great change in a person which occurs during a difficult period of their life.

This exhibition follows what katabasis stands for in terms of interpersonal changes that can occur in a person throughout their lifetime and what connections are formed during this period as well as what forms they create. By working with painting as a medium to sieve and collect detritus of the subconscious, it is possible to catch what sits at the bottom of the underworld.

Heimir Snær is a practising visual artist with a BA Hons. degree in Fine Arts from the University of Cumbria and a MA in Fine Arts from the Icelandic University of Arts. Heimir started his art school journey in the fine art painting program in the Visual Art School of Reykjavík in 2021 and has a background working in the Art Department for TV and Film.

Heimir has previously exhibited works that tie into ideas about the shadow, the daily path of the sun, messaging through space, dreams and foreboding prophecies.

There will be a special exhibition opening on Thursday, November 5th  from 18:00-21:00 and you are welcome!

Additional Opening Hours

Fri. November 6th  14:00–17:00
Sat. November 7th  14:00–17:00
Sun. November 8th  14:00–17:00

Fri. November 13th  14:00–17:00
Sat. November 14th  14:00–17:00
Sun. November 15th  14:00–17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by town Hafnarfjordur for this event.

 

Ábendingagátt