Sannkölluð menningarhátíð verður í Hafnarborg síðasta vetrardag. Tilkynnt verður hvaða Hafnfirðingur hlýtur nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2024 og menningarstyrkir og styrkir úr húsverndarsjóði verða afhentir. Tónlistarmenn úr hópi styrkhafa flytja tónlist við athöfnina.

Athöfnin er öllum opin og hefst kl. 17 í aðalsal Hafnarborgar. Viðtakendur menningarstyrkja eru einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkjum menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar er úthlutað tvisvar á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar menningarlíf bæjarins. Styrkur úr húsverndarsjóði eru til viðhalds og endurbóta eldri húsa í bænum.

Tónlistarmenn úr hópi styrkhafa flytja tónlist við athöfnina og að henni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Ábendingagátt