Opnun – Stór heimur og May Show Signs of Minor Defects
Fimmtudaginn 4. júní kl. 18 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýninganna Stórs heims eftir Helga Þorgils Friðjónsson og May…
Fimmtudaginn 4. júní kl. 18 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýninganna Stórs heims eftir Helga Þorgils Friðjónsson og May Show Signs of Minor Defects eftir Svein Fannar Jóhannsson.
Á sýningu Helga Þorgils Friðjónssonar, Stórum heimi, mætast draumkenndur veruleiki og íhugun um tilveru mannsins og samband hans við náttúruna, þar sem maður og náttúra birtast sem órjúfanleg heild. Myndmál listamannsins er fígúratíft og frásagnarkennt, samsett úr ótal táknum. Fígúrurnar birtast í óræðum en jafnframt kunnuglegum aðstæðum þar sem íslensk náttúra, fuglar, sjávardýr, trúarlegir og táknrænir þættir fléttast saman á ljóðrænan hátt. Myndheimurinn er bæði fíngerður og kraftmikill og fagurfræðin leitar út fyrir hinn jarðbundna veruleika. Stór heimur, þar sem frásögn og tilfinning vinna saman og fegurðin svífur á mörkum hins skynjanlega og hins ímyndaða.
Sýningarstjóri er Aldís Arnardóttir.
Helgi Þorgils Friðjónsson hefur um áratugaskeið verið einn af afkastamestu myndlistarmönnum landsins. Allt frá upphafi ferilsins á miðjum áttunda áratugnum vakti hann athygli fyrir nýstárlegan og persónulegan frásagnarmáta sem hefur skapað honum sérstöðu í íslensku myndlistarlífi og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi. Á löngum ferli hefur myndmál hans verið í stöðugri þróun, þar sem tilvist mannsins er í forgrunni. Helgi Þorgils hefur sýnt víða um heim frá árinu 1974, meðal annars fyrir hönd Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1990 og í virtum söfnum og sýningarrýmum í Evrópu og Bandaríkjunum.

Sveinn Fannar Jóhannsson hefur lengi unnið með fundnar ljósmyndir og annað efni sem hefur lent utan við upprunalegt samhengi sitt. Við sjáum myndir af pörum, af strandlengju, af óskreyttu jólatré. Flokkarnir eru kunnuglegir en hnitin horfin. Það sem er þó svo grípandi er ekki aðeins treginn sem slíkar týndar myndir bera með sér, heldur það sem þær draga í leiðinni fram. Það sem bindur verkin á sýningunni saman er sameiginleg áhersla þeirra á að samhengi sé hlutbundið, þar sem merking verður til í gegnum tilfærslu og umgjörð.
Sýningarstjóri er Daría Sól Andrews.
Sýningin nýtur stuðnings frá Norske Billedkunstnere, Norsk Fotografisk Fond og Office for Contemporary Art Norway.
Sveinn Fannar Jóhannsson (f. 1977) býr og starfar í Osló, Noregi. Í verkum sínum vinnur hann meðal annars með ljósmyndun, skúlptúr, útgáfu og sýningarstjórn. Þá fæst hann gjarnan við stöðu höfundar, skrásetningu og félagslega merkingu mynda, svo sem í formi sýninga, bóka eða annars prentaðs efnis. Verk hans kanna samband daglegs lífs, listmunarins og þess samhengis sem sýningar skapa, þar sem ólíkum miðlum og efnivið er oft fléttað saman innan sama verks. Hann stundaði nám við Listaakademíuna í Leipzig á árunum 2003 til 2009. Frá árinu 2012 hefur hann rekið sjálfstæða forlagið Multinational Enterprises.
Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.