Í samstarfi við skapandi sumarstörf í Hafnarfirði 2023 langar okkur Írisi og Ísabellu – listadúóinu ‘Fljóðir’ – að bjóða ykkur að stíga inn í þann ‘listaheim’ sem við höfum verið að skapa í sumar. Sýningin okkar heitir Augnablik milli augnablika og er sett upp í Apótekssalnum í Hafnarborg.

Sýningin mun samanstanda af dansörverkum á myndbandsformi þar sem innblástur danssmíðarinnar er tengsl mannsins við náttúruna, saga staðsetninganna og hvernig ólík náttúruumhverfi hafa áhrif á hreyfingar. Ferlið var einnig fest á filmu þar sem við unnum með hugtakið ‘augnablik milli augnablika’, og það hvernig myndavélin getur fangað augnablik dansins og hreyfinga í náttúruumhverfi. Ljóðlist mun einnig koma við sögu þar sem að dansverkin verða samin samhliða ‘reflective’ ljóðskrifum, sem gefur áhorfandanum annan vinkil á túlkun verksins. Allir listrænu þættirnir eru sameinaðir í sýningunni sjálfri til að skapa einskonar veröld sem áhorfendur stíga inn í til þess að fá heildræna upplifun af ferlinu og listinni. Á opnunarsýningunni munum við einnig flétta inn lifandi dansi og gefa innsýn inn í sköpunarferlið okkar í sumar.
Opnunin verður mánudaginn 31. júlí milli klukkan 17-19 og við viljum endilega að þú komir að fagna þessari uppskeru með okkur!
Hlökkum til að sjá ykkur!
Íris og Ísabella, Fljóðir
Ábendingagátt