Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Föstudaginn 7. febrúar kl. 18-22 verður haldið upp á Safnanótt í Hafnarborg og því munu dyr safnsins verða opnar fram á kvöld, auk þess sem boðið verður upp á listasmiðju og vasaljósaleiðsögn. Hér fyrir neðan má finna nánari upplýsingar um dagskrá Hafnarborgar á Safnanótt:
18:00 Listasmiðja – mynd:bygging Boðið verður upp á listasmiðju í tengslum við yfirstandandi ljósmyndasýningar safnsins. Þar gefst gestum tækifæri til að gera tilraunir með myndbyggingu og þjálfa þannig sjónræna hæfileika sína með uppstillingu fundinna hluta. Markmiðið er að sjá fegurðina í því hversdagslega og kanna hvernig mismunandi sjónarhorn hafa áhrif á myndbyggingu, bæði hvað varðar nálgun á abstrakt eða hið sígílda kyrralíf. Allt efni verður á staðnum og hlutunum má raða saman á ýmsa vegu, taka ljósmyndir af uppstillingunum eða útfæra þær í teikningu. Leiðbeinandi er Unnur Mjöll S. Leifsdóttir, myndlistarmaður og verkefnastjóri fræðslu og miðlunar.
20:00 Landnám – vasaljósaleiðsögn Búi Bjarmar Aðalsteinsson leiðir gesti um ljósmyndasýningu Péturs Thomsen, Landnám, þar sem gengið verður um myrkvaðan sal með vasaljós. Á sýningunni má sjá landslagsverk sem ljósmyndarinn tekur að næturlægi en hann lýsir landið upp með flassi til að afmarka sviðið. Þá hangir svartur himininn yfir landslaginu í mörgum verkanna og ljáir myndunum annarlegan blæ. Meðal þeirra viðfangsefna sem Pétur rannsakar í samnefndri ljósmyndaröð eru námur, vegir, hraun, skógar, lækir og ræktarlönd, þar sem hann gefur sérstakan gaum að landnýtingu og þeim áhrifum sem hún hefur á náttúruna.
Á Safnanótt býðst gestum Vetrarhátíðar að heimsækja um fimmtíu söfn og skoða fjölbreyttar sýningar á höfuðborgarsvæðinu, jafnframt því sem söfnin bjóða upp á lifandi og skemmtilega dagskrá. Þá taka menningarstofnanir Hafnarfjarðar, Bókasafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg, þátt eins og vanalega. Frítt er inn á öll söfnin og alla viðburði í tilefni kvöldsins.