Söfn bæjarins standa okkur öllum opin á Safnanótt 7. febrúar milli kl. 18-22. Í Hafnarborg verður boðið upp á listasmiðju og vasaljósaleiðsögn. Á byggðasafninu verður glænýr ratleikur í Pakkhúsinu, tónlist og fyrirlestur. Svo skemmtir Einar Lövdahl á bókasafninu. Já, það verður nóg um að vera.

Hafnarborg

18:00
Listasmiðja – mynd:bygging

Boðið verður upp á listasmiðju í tengslum við yfirstandandi ljósmyndasýningar safnsins. Þar gefst gestum tækifæri til að gera tilraunir með myndbyggingu og þjálfa þannig sjónræna hæfileika sína með uppstillingu fundinna hluta. Markmiðið er að sjá fegurðina í því hversdagslega og kanna hvernig mismunandi sjónarhorn hafa áhrif á myndbyggingu, bæði hvað varðar nálgun á abstrakt eða hið sígílda kyrralíf. Allt efni verður á staðnum og hlutunum má raða saman á ýmsa vegu, taka ljósmyndir af uppstillingunum eða útfæra þær í teikningu. Leiðbeinandi er Unnur Mjöll S. Leifsdóttir, myndlistarmaður og verkefnastjóri fræðslu og miðlunar.

20:00
Landnám – vasaljósaleiðsögn
Búi Bjarmar Aðalsteinsson leiðir gesti um ljósmyndasýningu Péturs Thomsen, Landnám, þar sem gengið verður um myrkvaðan sal með vasaljós. Á sýningunni má sjá landslagsverk sem ljósmyndarinn tekur að næturlægi en hann lýsir landið upp með flassi til að afmarka sviðið. Þá hangir svartur himininn yfir landslaginu í mörgum verkanna og ljáir myndunum annarlegan blæ. Meðal þeirra viðfangsefna sem Pétur rannsakar í samnefndri ljósmyndaröð eru námur, vegir, hraun, skógar, lækir og ræktarlönd, þar sem hann gefur sérstakan gaum að landnýtingu og þeim áhrifum sem hún hefur á náttúruna.

 

Byggðasafnið

8:00 – 22:00  Húsið opið

18:00 – 22:00  Glænýr ratleikur um Pakkhúsið, Sívertsenshús og Beggubúð.

20:00 – 21:00  Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur: Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur heldur forvitnilegan fyrirlestur um nýútkomna bók sína og leiðir okkur í gegnum hjátrú af ýmsum toga.

21:00 – 21:30  Margrét Lára Jónsdóttir leikur á fiðlu og Tómas Vigur Magnús leikur á píanó nokkur klassísk og falleg lög í lok kvölds.

 

Sívertsenshús

18:00-22:00  Húsið opið

18:00-22:00  Annríki, þjóðbúningar og skart sýna baðstofuverkin

18:00-22:00  Glænýr ratleikur um Pakkhúsið, Sívertsenshús og Beggubúð

 

Beggubúð

18:00-22:00  Magnaðir munir í myrkrinu – komdu og skoðaðu Beggubúð í myrkri

18:00-22:00  Glænýr ratleikur um Pakkhúsið, Sívertsenshús og Beggubúð

 

 Bókasafnið

18:00-22:00 GEGNUMTREKKUR, RAGN OG RÓL – Einar Lövdahl á Safnanótt

Verið velkomin á þríþætt höfundarkvöld á Bókasafni Hafnarfjarðar í tilefni af Safnanótt þar sem gestur kvöldsins verður Einar Lövdahl – rithöfundur, tónlistarmaður og íslenskufræðingur.
Í upphafi dagskrár mun Einar segja stuttlega frá skáldsögunni Gegnumtrekkur, sem kom út hjá Máli og menningu í fyrra, og lesa upp brot úr bókinni. Að því loknu mun hann flytja frumsamin lög með grátbroslegum textum sem fjalla um mann sem móðgast, eirðarleysi og sveimhygli, og gráma höfuðborgarsvæðisins, svo fátt eitt sé nefnt. Einar slær botninn í dagskrána með léttum fyrirlestri um blót í íslensku nútímamáli.

Á Safnanótt býðst gestum Vetrarhátíðar að heimsækja um fimmtíu söfn og skoða fjölbreyttar sýningar á höfuðborgarsvæðinu, jafnframt því sem söfnin bjóða upp á lifandi og skemmtilega dagskrá. Þá taka menningarstofnanir Hafnarfjarðar, Bókasafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg, þátt eins og vanalega. Frítt er inn á öll söfnin og alla viðburði í tilefni kvöldsins.

Ábendingagátt