Á mínu máli: Skuggaleikhús – fjöltyngd sögusmiðja
Sunnudaginn 11. október kl. 13-15 bjóða Hafnarborg og GETA upp á fjöltyngda sögusmiðju þar sem þátttakendur skapa persónur og segja…
Föstudaginn 1. september kl. 18 verða haldnir fyrstu tónleikar þessa misseris í tónleikaröðinni Síðdegistóna í Hafnarborg. Á tónleikunum kemur fram söngvarinn Kjalar Martinsson Kollmar ásamt hljómsveit en hana skipa þau Alexandra Rós Norðkvist á trommur, Hlynur Sævarsson á bassa og Andrés Þór á gítar.
Kjalar vakti athygli á síðasta vetri fyrir þátttöku sína í Idol stjörnuleit og Söngvakeppni sjónvarpsins en sýnir hér á sér sjaldséðari hlið með fjölbreyttri efniskrá sem samanstendur af djassstandördum og djassskotinni tónlist úr ýmsum áttum.
Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.
Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og Tónlistarsjóði Rannís.