Á mínu máli: Skuggaleikhús – fjöltyngd sögusmiðja
Sunnudaginn 11. október kl. 13-15 bjóða Hafnarborg og GETA upp á fjöltyngda sögusmiðju þar sem þátttakendur skapa persónur og segja…
Sunnudaginn 26. maí kl. 14 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna skart:gripur ásamt sýningarstjóranum Brynhildi Pálsdóttur og hönnuðunum Hildi Ýr Jónsdóttur, Helgu Mogensen og Kjartani Erni Kjartanssyni (Orr).
Hildur Ýr, Helga og Kjartan eru meðal þátttakenda í sýningunni en þar getur að líta gripi eftir hóp níu gullsmiða, skartgripahönnuða og listamanna sem varpa ljósi á skartið í samtíma okkar.
Auk þeirra taka þátt í sýningunni þau Anna María Pitt, Arna Gná Gunnarsdóttir, Ágústa Arnardóttir, James Merry, Katla Karlsdóttir og Marta Staworowska en sýningin er sett upp í tengslum við HönnunarMars 2024.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.