Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Opið verður í Sveinshúsi fyrsta sunnudag í mánuði í sumar frá kl. 13:00 til 17:30. Sveinshús, blátt að lit, blasir við frá súrheysturnunum í Krýsuvík og er afleggjarinn að húsinu merktur með skilti Vegagerðarinnar. Að vanda verður boðið upp á kaffiveitingar og leiðsögn um sýningu og hús.
Ákveðið hefur verið að sýningin KONAN MÍN sem verið hefur uppihangandi síðast liðin tvö ár framlengist í eitt ár til viðbótar en margir hafa lýst yfir áhuga á að sjá hana en misstu af henni s.l. sumar. Þess má geta fyrir þá sem vilja kom aftur að skipt hefur verið út tveimur myndum og fjórum bætt við í staðinn sem varpa frekar ljósi á viðfangsefni sýningarinnar. Þetta er tíunda og viðamesta sýningin sem Sveinssafn hefur sett upp í Sveinshúsi frá upphafi. Tekur upphengingin mið af svonefndum „salon“ sýningum í Frakklandi á 18. og 19. öld en einnig bíblíumyndasögum á veggjum og loftum miðaldakirkjunnar. Sýningin hefur hlotið mikið lof sýningargesta og því hvetjum við eindregið þá sem ekki hafa séð sýninguna, en hafa taugar til listar Sveins Björnssonar, að koma og „sjá list hans í alveg nýju ljósi“, eins og margir sýningagesta hafa haft á orði, – á meðan enn gefst tækifæri til.
Sýningin KONAN MÍN tekur til myndverka frá fantasíuskeiði listamannsins Sveins Björnssonar (1925-1997) sem hefur að geyma konuandlit, sem ýmist hefur verið kennt við Madonnu, Krýsuvíkurmadonnu, huldu, huldukonu, heilaga konu eða listagyðju. Með öðrum orðum konu listamannsins eins og hún birtist í myndheimi hans og með ákveðnum hætti einnig í raunheimi hans. Líta má svo á að Sveinn Björnsson vinni með myndleiðistef í listheimi sínum á fantasíutímabili hans sem stóð yfir ca 1958 – 1992. Hann setur þessi leiðistef fram með margvíslegum hætti í verkum sínum, stillir þeim saman þannig að ný merking verður til; minnir þannig óneitanlega nokkuð á óperusmíðaaðferð Richard Wagners (Leidmotiv). Ekki leiðum að líkjast þar. Allt þetta og meira til í leiðsögn um sýninguna KONAN MÍN. Verið velkomin.