Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sunnudaginn 11. maí kl. 14 býður Tónagull í samstarfi við Hafnarborg upp á fjöltyngda tónlistarsmiðju fyrir fjölskyldur með ung börn (0-4) ára. Í smiðjunni skemmta bæði börn og foreldrar sér við að syngja söngva og þulur, hreyfa sig og leika með litríka klúta, auk þess að spila á ýmis smáhljóðfæri sem eru sérstaklega valin fyrir þennan aldurshóp. Markmiðið með smiðjunni er að efla gleði og vellíðan í gegnum tónlist og hreyfingu, jafnt fyrir börn og foreldra.
Námskeiðsefnið sjálft er þróað af Helgu Rut Guðmundsdóttur, prófessor í tónmennt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og hefur verið í boði samfellt frá árinu 2004. Hafnarborg hefur svo verið samstarfsaðili Tónagulls síðan vorið 2020 þegar fyrst var boðið upp á reglulegar tónlistarsmiðjur á pólsku í safninu. Þá vekjum við sérstaka athygli á því að hvorki er krafist fyrri reynslu af tónlist né þarf að kunna íslensku til að taka þátt í smiðjunni – allar fjölskyldur, óháð móðurmáli og menningarbakgrunni, eru hjartanlega velkomnar. Tónagull er fyrir alla!
Leiðbeinandi er Natalia Duerte Jeremías.
Hægt að kynna sér aðferðafræði Tónagulls nánar á tonagull.is.