Animeklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar – fyrir 14-16 ára
Animeklúbbur fyrir 14-16 ára á Bókasafni Hafnarfjarðar! Horfum á, lesum, leikum, gerum, og mikilvægast: hittum aðra animeaðdáendur! Klúbburinn er í…
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar. Mánudaginn 23. febrúar er síðan sameiginlegur skipulagsdagur leik- og grunnskóla. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skemmtilegri dagskrá í vetrarfríinu og finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu um allan Hafnarfjörð fyrir alla fjölskylduna.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum af áhugaverðum stöðum að heimsækja, leik- og boltavellir eru víða og fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um Hafnarfjörð.
Heilsubærinn Hafnarfjörður óskar íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs vetrarfrís!