Vetrarhátíð 2026

Vetrarhátíð 2026 verður haldin dagana 5.–8. febrúar. Hún fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.

Þessi hátíð ljóss og myrkurs samanstendur af þremur meginstoðum:

  • Safnanótt
  • Sundlauganótt
  • Ljósaslóð

Fjöldi listamanna tekur þátt í 150 viðburðum og skapa einstaka stemningu á höfuðborgarsvæðinu. Frítt er á alla viðburði.

Hér í Hafnarfirði njótum við Vetrarhátíðar. Söfnin okkar þrjú;

Bókasafn, Byggðasafn og Hafnarborg verða með dagskrá föstudaginn 6. febrúar frá kl. 18 – 22. Lengri opnun verður í Suðurbæjarlaug laugardaginn 7. febrúar og sunnudaginn 8. febrúar verða Hafnarfjarðarkirkja, Hásalir og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar lýst upp með fallegum litum. Við hvetjum fjölskyldur til að fara í notalegan bíltúr og njóta litadýrðarinnar milli kl. 18 og 22.

Um helgina eru jafnframt síðustu forvöð að njóta ljósadýrðarinnar í Hellisgerði.

Sýning í Litla Gallerí, fimmtudag – sunnudags. Hafið // Emil J. Sigurðsson

Safnanótt í söfnum Hafnarfjarðarbæjar

Söfn bæjarins standa okkur öllum opin á Safnanótt föstudaginn 6. febrúar milli kl. 18-22 og eins og alltaf þá er frítt inn.

Hafnarborg – föstudaginn 6. febrúar

18:00
Blóm verða til – fylgstu með blómagerð

Innan yfirstandandi sýningar Eggerts Péturssonar í safninu mun Doaa frá Palestínublómum vinna blóm úr kreppappír í rýminu. Þá byggir blómagerðin á næmi fyrir litum og formi, líkt og sjá má í verkum Eggerts, þar sem smæstu jurtir verða að stórbrotnu landslagi á myndfletinum. Gestum er boðið að fylgjast með ferlinu þegar handgerð pappírsblóm taka á sig mynd innan sýningarinnar og kallast á við verkin í kring.

19:00
Tónaflóð – tónheilun með Völu Gestsdóttur
Vala Gestsdóttir, tónskáld, víóluleikari og jógakennari, leiðir djúpslakandi stund í staðbundinni innsetningu Unu Bjargar Magnúsdóttur. Með róandi tónum er gestum boðið í ferðalag sem hreyfir við orkuflæði líkamans, styður við jafnvægi, nærveru og innri kyrrð út frá heilunarmætti tónlistarinnar. Mælt er með því að vera í þægilegum fatnaði og hafa meðferðis dýnu, púða og teppi og jafnvel augnhvílu.

Byggðasafnið – föstudaginn 6. febrúar

Opið verður í þremur húsum Byggðsafnsins á safnanótt. Pakkhúsinu, Sívertsen húsi og í Beggubúð.

Pakkhúsið

Skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna.

18:00-19:00  Sjónaukasmiðja, þar verður hægt að föndra sinn eiginn sjónauka og skoða safnið nánar með honum.

18:30  Skátarnir úr Hraunbúum spila vel valin lög

20:00  Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur heldur erindið: Álfabyggðir og bannhelgi í Hafnarfirði: Tengsl hjátrúar við náttúrusýn. 

Sívertsenhús

Annríki þjóðbúningar og skart sýna baðstofuverkin frá 18:00-22:00. Þar verður hægt að skoða þjóðbúninga og skart hjá hjónunum Guðrúnu Hildi Rosenkjær og Ásmundi Kristjánssyni.

Beggubúð

Kíktu í heimsókn í Beggubúð og skoðaðu það sem var til í verslunum Hafnarfjarðar á árum áður.

Bókasafnið – föstudaginn 6. febrúar 

Borðspil, saumasmiðja, tónlistaratriði og plötumarkaður

18:15 – 19:45
Saumasmiðja á 2.hæð með Heimateymisfólki ætluð yngri kynslóðinni, hentug fyrir litla putta sem vilja fá að potast í saumaskap. Efni á staðnum.

19:30
Hljómsveitin LEA, skipuð af vinunum Katrínu, Láru og Ella. Tónlist þeirra er innblásin af indípoppi og þjóðlagatónlist og leggur áherslu á persónulega og ljóðræna texta. Innblástur í lagasmíðina draga þau frá fólkinu í kringum sig og fagurri náttúru heimalandins. Tveir meðlimir sveitarinnar, Katrín og Lára, munu leika á gítarinn og syngja ný og eldri lög fyrir gesti og gangandi.

20:10
Saumasmiðja fyrir lengra komna. Hér gefst tækifæri á að prófa handavinnu úr heimi sögulegrar klæðagerðar undir leiðsögn Hugrúnar Óskar, klæðskerameistara.

Á Safnanótt býðst gestum Vetrarhátíðar að heimsækja um fimmtíu söfn og skoða fjölbreyttar sýningar á höfuðborgarsvæðinu, jafnframt því sem söfnin bjóða upp á lifandi og skemmtilega dagskrá. Þá taka menningarstofnanir Hafnarfjarðar, Bókasafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg, þátt eins og vanalega. Frítt er inn á öll söfnin og alla viðburði í tilefni kvöldsins.

„Með sól í hjarta – ljósmyndasýning á LED skilti við Fjarðarkaup á Safnanótt.

Fókus, félag áhugaljósmyndara, verður með myndasýningu á auglýsingaskilti Fjarðarkaupa á Safnanótt, 6. febrúar næstkomandi. Á skiltinu við bílaplan Fjarðarkaupa verða ljósmyndir frá Fókus félögum sem rúlla á klukkutímafresti, eins konar bílabíó, í byrjun hvers klukkutíma.

Sýningarnar hefjast klukkan: 18:00, 19:00, 20:00, 21:00, 22:00 og 23:00 og standa í 15 mínútur.

Sundlauganótt í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug – laugardaginn 7. febrúar

Sundlaugar bæjarins standa öllum opnar á Sundlauganótt laugardaginn 7. febrúar og er frítt inn á hápunktum dagsins.

Ásvallalaug – frítt frá 15 – 17

  • Vatnaboltar í stóru lauginni
  • Blöðrudýr á bakkanum

Suðurbæjarlaug – kvöldopnun & frítt frá 18 – 22

  • Kl. 19 – Tónlistarbingó – bingó og tónlist í eina sæng!

Hafnarborg – sunnudaginn 8. febrúar

13:00 – Sýningarstjóraspjall

Aldís Arnardóttir og Þórdís Jóhannesdóttir, sýningarstjórar, leiða gesti um yfirstandandi sýningar Eggerts Péturssonar, Roða, og Unu Bjargar Magnúsdóttur, Fyllingu. Þá sýna þau Una Björg og Eggert bæði ný verk sem beina sjónum áhorfenda að hinu smáa og hvernig allt er hluti af stærri heild, hvort sem um er að ræða gróður jarðar, skáldaðar og óskáldaðar sögur, efni eða rými.

13:00-15:00 – Fjöltyngd klippismiðja

Hafnarborg býður upp á fjöltyngda klippismiðju þar sem þátttakendur skapa sitt draumaheimili og velta því fyrir sér hvað skiptir máli, hvað við viljum hafa á heimilinu og hvað okkur dreymir um. Unnið verður með klippimyndir í bland við teikningu, þar sem hugmyndir um heimili spretta upp úr ímyndunaraflinu. Dýr, ævintýraleg form og hús sem svífa um í geimnum eiga hér fullt erindi. Tungumál smiðjunnar eru tékknéska, íslenska, enska og þýska, undir leiðsögn þeirra Marie Vesela og Anne Rombach.

Ljósalistaverk í hjarta Hafnarfjarðar – sunnudagurinn 8. febrúar

Sunnudaginn 8. febrúar verður Hafnarfjarðarkirkja, Hásalir og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar lýst upp með fallegum litum. Við hvetjum fjölskyldur til að fara í notalegan bíltúr og njóta litadýrðarinnar milli kl. 18 og 22.

Ábendingagátt