Laugardaginn 20. maí 15:00-17:00 býður spænska listakonan Otilia Martin upp á vinnustofu í tengslum við sýninguna Visual Monologues sem haldin er dagana 20.-24. maí n.k. í Litla Gallerý.

Um er að ræða 5 laus pláss og þátttaka frí. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt sendu okkur þá línu á litlagallery@litlagallery.is

„Stundum eru orð of lítil, of stór, of fjarlæg eða köld til að lýsa upplifunum eða tilfinningum sem við upplifum. Þau virka of rökstudd, of klínísk eða gervileg, eða hugsanlega krefjast þær mörg orð til að tjá skynjun sem dvínar áður en við ýtum á takka eða liftum penna.

„Visual Monologues“ vinnustofa skaffar þátttakendum verkfæri til að hugmyndavæða og túlka þessar ólýsanlegu tilfinningar: kannski til að kasta út djöflum eða að velkoma einhverja blessun.

Á þessari 2ja klukkustunda vinnustofu mun ég leiðbeina gestum í nokkrum skrefum með skapandi æfingum sem aðstoða þátttakendur að ímynda sér hvernig þeim líður, gefa skynjunum lögun og lýsa tilfinningum sjónrænt.

Gestir munu eignast verkfæri sem þau geta nýtt sér í framtíðinni, sem hjálpa þeim við skapandi ímyndanir, innri rannsókn og ytri tjáningu.“

Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar og spænska sendiráðinu á Íslandi.

Ábendingagátt