Afleysingastörf í leikskólum
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 01.03.2026
Umsóknarfrestur til: 31.08.2026
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Hæfniskröfur:
- Samskipta‐ og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þjónustulund og áreiðanleiki
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
- Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
- Góð almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.