Skóla- og frístundaliði í Drekasel – Hraunvallaskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 09.10.2026
Umsóknarfrestur til: 19.10.2026
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 30-50% starf í frístundaheimilið Drekasel
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Drekaseli sem er frístundaheimili fyrir börn með einhverfu frá kl. 13:00-16:30 virka daga. Sérstök áhersla í starfinu er að koma til móts við öll börn og mikilvægt er að umsækjandi hafi jákvæða afstöðu til nemenda og tiltrú á getu hvers og eins.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
- Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
- Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
- Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi
- Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Almenn tölvukunnátta
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is og Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, arnbjorga@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika