Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk – Drekavellir

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 23.03.2026

Umsóknarfrestur til: 07.04.2026

Tengiliður: Berglind Brynjarsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. 

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, með möguleika á fastráðningu í haust. Við leitum eftir starfsfólki sem getur hafið störf í byrjun júní. Starfshlutfall er 80 – 100 % starf í vaktavinnu. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði 
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum 
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum 
  • Almenn heimilisstörf 
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg 
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks 
  • Íslenskukunnátta skilyrði 
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og samviskusemi 
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Starfið krefst góðs líkamlegs atgervis  
  • Ökuréttindi skilyrði  

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is eða Gunnar Óli Gústafsson deildarstjóri, netfang: gunnarg@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 7.apríl 2026.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. 

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Holtasel – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli
Umsjónarkennari – Engidalsskóli – tímabundin ráðning
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Umjónarkennari á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Sérkennari – Hraunvallaskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Setbergsskóli
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli
Umsjónarkennari á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á unglingastigi – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi 80-100 % starf – Lækjarskóli
Umsjónarkennari á yngsta – eða miðstigi – Lækjarskóli
Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli
Tónmenntakennari – Skarðshlíðarskóli