Kennari í hönnun og smíði – Víðistaðaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.04.2026

Umsóknarfrestur til: 24.04.2026

Tengiliður: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir

Við í Víðistaðaskóla leitum að skapandi, hugmyndaríkum og drífandi kennara í hönnun og smíði, sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.

Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda, teymisvinnu/kennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.

Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Annast kennslu í nýsköpun, list- og verkgreinum, hönnun og smíði á öllum stigum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Starfið er 100% og ráðið er frá og með 1. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, gudbjorgn@hafnarfjordur.is og Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is 

 Umsóknarfrestur er framlengdur til 24. apríl.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

Önnur störf