Kennslufulltrúi í upplýsingatækni – Mennta- og lýðheilsusvið

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 10.04.2026

Umsóknarfrestur til: 27.04.2026

Tengiliður: erla@hafnarfjordur.is

Við leitum að öflugum kennslufulltrúa í upplýsingatækni sem hefur brennandi áhuga á þróun skólastarfs og vill taka þátt í að móta stafræna framtíð grunnskóla bæjarins. Áhersla er lögð á gott samstarf milli fagfólks og þverfaglega nálgun til að tryggja farsæld barna. 

Á mennta- og lýðheilsusviði ríkir faglegt umhverfi þar sem metnaður, traust og lausnamiðuð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, auk þess sem starfsfólk fær stuðning og tækifæri til þróunar, meðal annars með fræðslu og endurmenntun. Lögð er áhersla á sterk tengsl við skólasamfélagið, foreldra og aðra samstarfsaðila, bæði innan og utan sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna að stefnumótun, s.s. námskrárgerð og aðgerðaáætlunum á sviði upplýsingatækni
  • Fylgja eftir könnunum á þróun skólastarfs og setja fram tillögur að umbótum
  • Hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum þegar kemur að hugbúnaði fyrir nemendur og veitir skólum ráðgjöf hvað það varðar
  • Skipuleggur og sér um fræðslu og endurmenntun fyrir kennara og stjórnenda á sviði upplýsingatækni í samstarfi við skóla og starfsfólk grunn- og leikskóladeildar
  • Fylgir eftir og veitir ráðgjöf um forvarnir er varða netnotkun nemenda til starfsfólks skóla, foreldra og nemenda (stafræn borgaravitund)
  • Þátttaka í samstarfi við frístund, félagsmiðstöðvar, forvarnarfulltrúa Hafnarfjarðar og önnur sveitarfélög á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
  • Þátttaka í stefnumörkun, þróun og nýbreytni í skólastarfi í Hafnarfirði
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar og/eða upplýsingatæknimenntunar
  • Kennslureynsla í grunnskóla
  • Reynsla af upplýsingatækni í skólastarfi
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
  • Reynsla af kennsluráðgjöf æskileg
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar
  • Hæfni til að stýra verkefnum og teymisvinnu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Mjög góð tölvukunnátta

Starfshlutfall er 100%.

Nánari upplýsingar veitir Erla Karlsdóttir þróunarfulltrúi grunnskóla, erla@hafnarfjordur.is 

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl n.k.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. 

Fast inni í öllum auglýsingum: Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf